BORGARBÓKASAFNIÐ
Hvað er það við staði sem lætur okkur langa til að setjast niður, staldra við og jafnvel hefja samtal við ókunnuga manneskju?

Stofan | A Public Living Room var samsköpunarverkefni til þriggja ára frá 2021 til 2024 þar sem ólíkir einstaklingar eða hópar fengu frjálsar hendur á bókasafninu til endurskapa valið rými eftir sínu höfði og búa til eigin útgáfu af samfélagstorgi. Í tilraunaferlinu var höfðað til ólíkra skynfæra, rýnt í hugmyndir um hlutlaust rými, vellíðan og óskrifaðar reglur bókasafna sem tengjast viðurkenndri hegðun á slíkum stað.
Í Stofunni höfum við meðal annars stigið trylltan dans, frætt okkur um réttindi, rasisma og loftlagsmál, deilt mat og menningu, sagt persónulegar sögur, farið í sturtu, aukið skynbragðið, dvalið í þögn, ímyndað okkur nýjar framtíðir og endurhlaðið batteríin.
Hughrifsveggur Stofunnar var settur upp í lok verkefnis með samansafni af fjölbreyttum útgáfum af samfélagstorgi framtíðarbókasafnsins - af stað þar sem þú getur hafið samtal; miðlað óháð tungumáli og síðast en ekki síst hlúð að samfélaginu - share the care.
Hver einstök Stofa | A Public Living Room var skrásett í máli, myndum og hljóðupptökum.
Hlustaðu - Nokkur af samtölunum í Stofunni og skoðaðu þig um í ólíkum Stofum í yfirlitinu til hliðar.

Hvað er Stofan | A Public Living Room?
Einu sinni í mánuði er stofan opnuð af samstarfsaðila sem hefur hannað rýmið eftir sínu höfði. Opnun stofunnar hefst með samtali við aðila að eigin ósk. Í hvert skipti sem stofan er opnuð er upphafssamtalið tekið upp og notað í hlaðvarp, sem gerir samskiptin í stofunni aðgengilegri fleiri notendum.
Stofan er tilraunakenndur staður – samfélagsrými eins og bókasafnið gæti verið. Þetta er staður sem býður notendum að tengjast öðrum, finnast þau vera hluti af samfélaginu á eigin forsendum, taka þátt sem borgari á jafnréttisgrundvelli og eiga í samskiptum sem takmarkast ekki við tungumálakunnáttu. Í samtölum í Stofunni er höfðað til allra skynfæra þegar umhverfið, hugmyndir og skilningur eru könnuð.
Hvernig er Stofan | A Public Living Room?
Hreyfanleiki er hluti af eðli stofunnar, sem er ekki bundin við eina staðsetningu heldur getur birst í ólíku umhverfi – jafnt innan- sem utandyra.
Ár hvert er hópi notenda boðið til skapandi samstarfs í þróun dagskrár Stofunnar í kringum ákveðið þema:
2021-22: Samfélagsrými sköpuð
2022-23: Ólíkar samskiptavíddir kannaðar
2023-24: Not og gildi safnsins í dag og daganna sem koma skulu
Í byrjun er verkefnið kynnt mögulegum samstarfsaðilum og þeim boðið að taka þátt í tveimur hugarflugsfundum. Á fyrri hugarflugsfundi er verkefnið, eðli samstarfsins og áhersla kynnt og mögulegar hugmyndir/kringumstæður rýndar. Á seinni hugarflugsfundi kynna samstarfsaðilar mögulegar útfærslur í dagskrárgerð, hugmyndum er kastað á milli og aðilar kynnast betur innbyrðis. Hver samstarfsaðili hittir verkefnastjóra til að kanna kringumstæður og undirbúa rými. Gert er ráð fyrir tveimur undirbúningsfundum fyrir hverja opnun.
Af hverju er Stofan | A Public Living Room á bókasafninu?
Stofan er vettvangur bókasafnsins til að prófa sig áfram í samsköpun í dagskrárgerð og þróun rýmisins með nýjum notendum til að þróa fjölbreyttari dagskrá og eftirsóknarverðari stað fyrir fleiri.
Verkefnið er styrkt af Bókasafnasjóði.
Frekari upplýsingar
Martyna Karolina Daniel
Verkefnastjórn | Aðgengi og samfélagsleg þátttaka
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is