Tilbúningur | Fyrir skapandi fólk á öllum aldri

Langar þig að eiga notalega stund þar sem sköpunarkrafturinn fær að njóta sín í góðum félagsskap?

Tilbúningur er viðburðaröð sem fer fram 

  • annan þriðjudag hvers mánaðar í Borgarbókasafninu Árbæ frá  kl. 15.:0-17:30
  • fyrsta miðvikudag hvers mánaðar í Borgarbókasafninu Spönginni frá kl. 15:30-17:30
  •  
  • fyrsta fimmtudag hvers mánaðar í Borgarbókasafninu Úlfarsárdal frá kl. 15:30 - 17:30

Eigum saman notalega stund, búum eitthvað til úr einhverju og endurnýtum alls konar. Leiðbeinendur koma með hugmyndir, efni og áhöld og aðstoða við tilbúninginn.

Viðburðaröðin hefur svo sannarlega slegið í gegn. Boðið hefur verið upp á fjölbreytt viðfangsefni og má þar m.a. nefna mandölur, punktalist, sólarprent, barmmerkjagerð, pappírsblóm, jólastjörnur og fleira.

Viðburðirnir henta skapandi fólk á öllum aldri.
Ókeypis aðgangur og engin skráning.

Fylgist með dagskránni í viðburðatalinu hér á heimasíðunni eða á Facebook síðu safnsins.

 

Nánari upplýsingar veita:

Árbær:
Sæunn Þorsteinsdóttir, sérfræðingur
saeunn.thorsteinsdottir@reykjavik.is | 411 6250

Spöngin:
Védís Huldudóttir, sérfræðingur
vedis.huldudottir@reykjavik.is | 411 6230

Úlfarsárdalur:
Stella Sif Jónsdóttir, sérfræðingur
stella.sif.jonsdottir@reykjavik.is | 411 6270