Algengar spurningar
Hvað er hægt að fá að láni í Borgarbókasafninu?
- Borgarbókasafnið á fjölbreytt úrval bóka, tímarita, tónlistar, nótna, kvikmynda, borðspila, kökuforma, tungumálanámskeiða og annars fyrir alla aldurshópa. Einnig er hægt að fá DVD spilara að láni.
- Þú getur leitað að öllu saman á borgarbokasafn.leitir.is.
- Hægt að leigja eða kaupa myndlist eftir íslenska listamenn í Artóteki Borgarbókasafnsins, sem er í Grófinni, Tryggvagötu 15. Sjá nánar á artotek.is.
Hvar fæ ég bókasafnskort og hvað kostar það?
- Þú getur komið á hvaða bókasafn sem er hér í Reykjavík eða á höfuðborgarsvæðinu, og fengið nýtt bókasafnskort. Það eina sem þú þarft að gera er að sýna persónuskilríki og greiða árgjald.
- Allt um árgjald fyrir bókasafnskort og önnur gjöld má finna í gjaldskrá.
- Eldri borgarar, 67 ára og eldri, greiða ekki fyrir bókasafnskort.
- Börn og unglingar undir 18 ára aldri, öryrkjar og einstaklingar á endurhæfingarlífeyri þurfa ekki að greiða fyrir bókasafnskort.
- Handhafar Menningarkortsins fá ókeypis bókasafnskort með sama gildistíma og Menningarkortið.
- Bókasafnskort fyrir börn og unglinga og handhafa Menningarkorts þarf að skrá og endurnýja í afgreiðslu bókasafnsins.
Hvar get ég endurnýjað bókasafnskortið?
- Þú getur komið á hvaða bókasafn sem er á höfuðborgarsvæðinu. Sjá nánar hér fyrir ofan: Hvar fæ ég bókasafnskort og hvað kostar það?
Er bókasafnskortið mitt í gildi?
- Það er einfalt mál að athuga það: prófaðu að skrá þig með rafrænum skilríkjum inn á „Mínar síður“ á borgarbokasafn.leitir.is. Undir flipanum um persónuupplýsingar má sjá hver gildistími kortsins er.
- Bókasafnskort er innifalið í Menningarkortinu og fylgir gildistíma þess. Til að virkja Bókasafnskort með Menningarkortinu þarf að koma í afgreiðslu safnsins.
Sjá nánar um Menningarkortin á menningarkort.is.
Hvað gildir bókasafnskortið lengi og hvar get ég notað það?
- Bókasafnskortið gildir í eitt ár. Kortið gildir í öllum almenningsbókasöfnum á höfuðborgarsvæðinu. Þau eru:
Átta söfn Borgarbókasafnsins í Árbæ, Gerðubergi, Grófinni, Klébergi, Kringlunni, Sólheimum, Spönginni og Úlfarsárdal.
Bókasafn Garðabæjar
Bókasafn Hafnarfjarðar
Bókasafn Kópavogs
Bókasafn Mosfellsbæjar
Bókasafn Seltjarnarness
Hvar fæ ég stafrænt bókasafnskort?
- Smelltu hér til að sækja stafrænt bókasafnskort fyrir snjallsíma. Stafræna kortið kemur í staðinn fyrir gamla góða plastskírteinið, en til þess að kortið gagnist þarf notandinn að vera virkur meðlimur á bókasafninu. Annað hvort með því að greiða árgjald eða fá frítt bókasafnskort.
- Android notendur þurfa að setja upp appið „Smart Wallet“ til þess að nota kortið.
Get ég pantað bækur eða annað efni?
- Já, með því að skrá þig inn á Mínum síðum á borgarbokasafn.leitir.is getur þú tekið frá og endurnýjað útlán.
- Ennig er sjálfsagt að hringja í síma 411 6100 eða senda línu á borgarbokasafn@borgarbokasafn.is og biðja um aðstoð.
Hvenær get ég sótt efnið sem ég pantaði?
- Ef efnið er í hillu höfum við samband við þig í tölvupósti eða síma þegar efnið er tilbúið til afhendingar.
- Ef efnið er inni en ekki á því safni sem þú baðst um, munum við koma því á rétt safn og láta vita um leið og hægt er að sækja. Farið er með efni milli safnana tvisvar í viku.
- Ef efnið sem þig langar í er ekki inni, setjum við þig á biðlista og látum vita um leið og það er aðgengilegt og tilbúið á safninu þínu.
Get ég séð á netinu hvað ég er með í láni?
- Já, þú getur skráð þig inn á „Mínar síður“ á borgarbokasafn.leitir.is með rafrænum skilríkjum.
- Á „Mínum síðum“ geturðu séð hvað þú ert með í láni og hvenær þarf að skila, þú getur fylgst með frátektum og endurnýjað útlán.
Hvað má ég hafa bækurnar/tónlistina/DVD lengi?
- Útlánstími gagna er mismunandi en bækur eru að jafnaði lánaðar út í 30 daga; tónlist og myndefni í 2 vikur.
- Fullorðnir geta haft allt að 40 gögn að láni á sama tíma; börn undir 18 ára aldri geta haft að hámarki 15 gögn að láni á sama tíma.
Er hægt að framlengja lán?
- Já, þú getur skráð þig inn á „Mínar síður“ á borgarbokasafn.leitir.is. Þar geturðu framlengt hverju láni tvisvar sinnum. Einnig er hægt að framlengja með því að hringja í Borgarbókasafnið í síma 411-6100, senda tölvupóst á borgarbokasafn@borgarbokasafn.is, hafa samband á Facebook Messenger eða mæta á staðinn.
Hvert get ég skilað?
- Þú getur skilað bókum og öðru efni á hvaða Borgarbókasafn sem er og einnig á vinasöfn okkar á Seltjarnarnesi og í Mosfellsbæ.
Hvað eru „Mínar síður“ á Leitir.is?
- Á „Mínum síðum“ á borgarbokasafn.leitir.is geta innskráðir lánþegar séð yfirlit yfir útlán og skuldir, endurnýjað lán og pantað efni o.fl.
Hvar fæ ég lykilorð?
- Lánþegar velja sér lykilorð með skírteinum sínum. Lykilorðið er notað til þess að skrá sig inn á „Mínar síður“ á borgarbokasafn.leitir.is og á Rafbókasafnið.
- Ef þú hefur gleymt lykilorðinu þínu, eða hefur aldrei skráð nýtt lykilorð, þá geturðu sótt um það hér: Sækja um nýtt lykilorð í bókasafnskerfi.
- Lykilorðin komu til í júní 2022 með nýju bókasafnskerfi. Fyrir þann tíma var PIN númer notað fyrir allar innskráningar, en nú er PIN aðeins notað fyrir sjálfsafgreiðsluvélar.
Hvar fæ ég PIN?
- Lánþegar velja sér PIN-númer með skírteinum sínum. Númerið er notað í sjálfsafgreiðsluvélunum.
- Ef þú hefur gleymt PIN-númerinu þínu þá getur þú komið í afgreiðslu bókasafnsins með skilríki og beðið um nýtt PIN-númer og starfsfólk safnsins gengur frá því í einum grænum.
Má ég nota bókasafnskort einhvers annars eða má ég lána mitt kort?
- Nei. Bókasafnskort Borgarbókasafns eru gefin út á einstakling og það er óheimilt að nota kort annarra. Sem eigandi bókasafnskorts berð þú ábyrgð á öllu efni sem lánað er út á það.
Hvað með fólk sem kemst ekki á bókasafnið vegna aldurs eða fötlunar?
- Borgarbókasafnið býður upp á heimsendingarþjónustu sem nefnist Bókin heim.
Hvað kostar að taka bækur eða DVD að láni?
- Það kostar ekkert aukalega að taka bækur, DVD eða hvað sem er að láni – en þú þarft að eiga gilt bókasafnskort.
Hversu háar eru sektir?
Kemst ég á netið í Borgarbókasafninu?
- Aðgangur er að tölvum og internetinu í öllum söfnum Borgarbókasafnsins, og einnig er hægt að prenta, ljósrita og skanna.
- Einnig er þráðlaust net í öllum söfnum Borgarbókasafnsins og geta gestir því komist á netið í fartölvum sínum, símum o.s.frv.
Hvað gerist ef ég týni eða skemmi efni sem ég er með í láni?
- Greiða þarf fyrir gögn sem glatast eða skemmast í meðförum lánþega. Viðmiðunargjald fyrir glötuð eða ónýt gögn má sjá í gjaldskrá.
Get ég pantað efni frá öðrum bókasöfnum?
- Já. Þegar þú tekur frá bækur eða annað efni á borgarbokasafn.leitir.is þarft þú bara að tilgreina hvert þú vilt sækja; ef efnið er til á einhverju safnanna okkar verður næsta lausa eintak sent á milli.
- Sömuleiðis er hægt að fá sendar frátektir frá samstarfssöfnum okkar í Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi, með því að senda frátektarbeiðni á borgarbokasafn.leitir.is og biðja um afhendingu á eitthvert bókasafnanna okkar.
- Loks er hægt að panta millisafnalán fyrir bækur eða annað efni frá bókasöfnum á landsbyggðinni eða utan landsins, sjá nánar í leiðbeiningum um millisafnalán.
Tekur Borgarbókasafnið við bókagjöfum?
- Nei, því miður getum við ekki tekið við bókagjöfum.