Kompan | Hlaðvarpsstúdíó
Kompan er fullbúið hlaðvarpsstúdíó á 5. hæð Borgarbókasafnsins í Grófinni.
Notendur bókasafnsins geta bókað Kompuna og nota upptökubúnað safnins til að taka upp hlaðvarp þeim að kostnaðarlausu.
Í bókunarforminu hér fyrir neðan má velja 1-4 klukkustundir og bóka tíma. Vegna sóttvarna bætist við 15 mínútna hlé á milli bókanna.
- Gestum er frjálst að bóka allt að fjóra klukkutíma í senn í Kompunni mest tvisvar í viku.
- Kompan opnar á sama tíma og Grófarhús en lokar klukkutíma fyrir lokunartíma þess.
- Notendur þurfa að hafa gilt bókasafnskort hjá Borgarbókasafninu.
(Ef þú vilt athuga hvort kortið þitt sé í gildi getur þú skráð þig inn á „Mínar síður“ hér efst á síðunni. Ef kortið er útrunnið verður þér boðið að endurnýja gildistímann.)
Tæknilegar upplýsingar
Í Kompunni býðst fólki að taka upp allt að fjórar rásir í senn, hver með sinn hljóðnema, og þar eru sæti fyrir fimm. Fjórir geta hlustað á upptökur og hljóðblöndun í einu. Fólki býðst einnig aðgangur að tölvu til eftirvinnslu með aðgengi að forritunum Audacity og Reaper, en kennsluleiðbeiningar á forritin eru aðgengilegar í rýminu.
Í Kompunni er að finna:
- The RØDECaster Pro upptökutæki
- Fjóra RØDE Podcaster hljóðnema
- Fjögur heyrnartól
- Pop-filter á hverjum hljóðnemastandi
Borgarbókasafnið stendur sjálft fyrir framleiðslu á ýmsum hlaðvarpsþáttum sem teknir eru upp í Kompunni. Hlaðvarp Borgarbókasafnsins má finna í helstu hlaðvarpsöppum.
Ef þú vilt spyrja frekar út í tækjabúnað eða fyrirkomulag, eða rabba um Kompuna almennt, skaltu senda okkur línu á hladvarp@borgarbokasafn.is.