Aðstaða og tæki - Algengar spurningar

Þarf ég bókasafnskort, kunnáttu, skilríki, dvalarleyfi, íslenskukunnáttu o.s.frv. til að nota aðstöðu eða tæki Borgarbókasafnsins?

Öll eru velkomin en yngri börn ættu að vera í fylgd með fullorðnum. Aðeins þarf bókasafnskort þegar aðstaða eða tæki er bókað til einkanota og þegar Kompan er bókuð. 

Kostar að nota aðstöðuna?

Nei, það er frítt inn en við rukkum lágmarks efniskostnað fyrir t.d. vínilskurð og barmmerki. Hér getur þú séð gjaldskrána.

Takið þið við gjöfum? - t.d. tölvum eða hljóðfærum?

Við tökum fagnandi við tækjum sem eru í lagi og geta styrkt starfið! Vinsamlegast sendu okkur skilaboð ef þú ert með eitthvað sem þú telur að gæti nýst!

Má selja það sem maður býr til?

Allt sem þú býrð til með tækjabúnaði safnsins er þín eign og þú mátt gera það sem þér sýnist við það - þó er ekki í boði að fjöldaframleiða hluti. 

Má ég halda viðburð, kenna eða leiða smiðju í rýmum safnsins?

Aðstaðan og tæknibúnaðurinn er ekki aðeins fyrir kennara eða skapandi aðila heldur öll þau sem þurfa stað til að deila þekkingu. Við tökum fagnandi á móti hugmyndum að nýjum smiðjum. Dæmi um smiðjur sem haldnar hafa verið eru: myndvinnsla, ljósmyndun, forritun, lagasmíði, raftónlistar- og endurvinnslusmiðjur.

Get ég bókað kynningu?

Starfsfólk  Borgarbókasafnsins leggur sig fram við að kynna aðstöðu, tæki og dagskrá sem snýr að skapandi tækni, svo sem á ráðstefnum og sýningum þar sem markhópurinn er fólk sem vinnur að skapandi verkefnum fyrir börn og ungmenni. Dæmi um kynningar eru Big Bang hátíðin, Innblástur o.fl. 

Ef þú vilt bóka kynningu frá okkur á viðburð tengdan kennslu eða skólastarfi getur þú sent okkur línu en ef þú vilt fá kynningu fyrir fyrirtæki eða fyrir viðskiptaaðila þá bendum við þér á að hafa samband við samstarfsaðila okkar Skema í HR eða Vísindasmiðjuna.