DVD spilarar til útláns
Vissir þú að við bjóðum upp á netta og meðfærilega DVD spilara til útláns á eftirfarandi söfnum Borgarbókasafnsins?
Grófinni / Kringlunni / Sólheimum / Gerðubergi / Spönginni / Árbæ
Nú geta kvikmyndaþyrstir notendur bókasafnsins sökkt sér í meistaraverkin í ró og næði, notið þess að horfa á vandaðar heimildamyndir heima í stofu og kannað framandi lönd og heima!
Í Grófinni eru hvað flestir diskar - en það er alltaf hægt að taka frá hér á heimasíðunni og sækja á það safn sem hentar best.
Hér er hægt að skoða úrval DVD diska á Borgarbókasafninu