Spjöllum með hreim
Spjöllum með hreim eru fjölbreyttar samverustundir fyrir þau sem vilja æfa sig að tala íslensku í vinalegu umhverfi. Viðburðirnir, sem haldnir eru vikulega, eru einnig frábær leið til að kynnast öðrum sem eru líka að læra. Spjöllum með hreim skiptist í fjórar tegundir viðburða sem gestir geta valið úr eftir áhugasviði og kennsluaðferð. Öll velkomin, einnig þau sem eru að byrja að læra íslensku! Allir viðburðirnir eru ókeypis og engin skráning, bara mæta, þú mátt koma eins oft og þú vilt!
Dagskráin Haust 2025:
Allir viðburðirnir fara fram á Borgarbókasafninu Grófinni, á laugardögum, kl. 11:30-13:30
Spilum og spjöllum |
Lesum og spjöllum |
Föndrum og spjöllum |
Skoðum og spjöllum |
Frábærir og reynslumiklir leiðbeinendur aðstoða þátttakendur. HÉR er hægt að kynnast þeim.
Saga Jen Zhang og Garance Merholz mæta reglulega á Spjöllum með hreim og segja það frábæra leið til að læra tungumálið og kynnast nýju fólki. Hér má lesa viðtal við Sögu og hér má lesa viðtal við Garance þar sem hvor um sig deilir reynslunni af viðburðunum og gleðinni.
Nánari upplýsingar veita:
Martyna Karolina Daniel, verkefnastjóri – aðgengi og samfélagsleg þátttaka
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is
Hildur Björgvinsdóttir, verkefnastjóri viðburða og fræðslu
hildur.bjorgvinsdottir@reykjavik.is