Um þennan viðburð

Tími
11:30 - 13:30
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Tungumál
-
Bókmenntir
Spjall og umræður
Tungumál

Lesum og spjöllum

Laugardagur 24. janúar 2026

Komdu og æfðu þig að tala íslensku í notalegu og afslöppuðu umhverfi og hittu fleiri sem eru líka að læra. Öll velkomin - líka byrjendur! 

Þátttaka er ókeypis og engin skráning, bara mæta!

Lesum og spjöllum á íslensku er bókaklúbbur fyrir þau sem eru að læra tungumálið. Við hittumst einu sinni í mánuði á 5. hæð í Borgarbókasafninu Grófinni (miðborg), lesum saman smásögur á íslensku, spjöllum um þær, spyrjum kennarann spurninga og segjum frá upplifun okkar.

Við verðum einnig með fjölbreytt safn borðspila fyrir öll getustig, ef einhver vilja nota spil til að æfa sig að tala íslensku.

Lesum og spjöllum er hluti af viðburðaröðinni Spjöllum með hreim (Let's chat with an accent), þar sem boðið er upp á fjórar skemmtilegar og ólíkar leiðir til að æfa sig að tala íslensku undir handleiðslu reyndra kennara. 

Hér getur þú lesið meira um Spjöllum með hreim og séð alla dagskrána. 

Viðburður á Facebook

 

Nánari upplýsingar veitir:
Hildur Björgvinsdóttir, verkefnastjóri viðburða og fræðslu
hildur.bjorgvinsdottir@reykjavik.is