Ljóðaslamm Borgarbókasafnsins
Viltu taka þátt?
Ljóðaslamm hefur verið reglulegur og vinsæll viðburður á Borgarbókasafninu í gegnum tíðina. Þekkt skáld, tónlistarfólk og sviðslistafólk hafa stigið sín fyrstu skref í Slamminu, enda er ljóðaslamm, eða Poetry Slam, listform sem útfæra má á fjölbreyttan máta.
Upplýsingar fyrir þátttakendur
Hvenær er næsta ljóðaslamm?
Ljóðaslamm 2025 verður haldið í Borgarbókasafninu Grófinni á Safnanótt, þann 7. febrúar.
- Einstaklingar og hópar velkomnir.
- Minnisblað er leyfilegt á sviði.
- Ljóðið eða textinn eru frumsamin.
- Flutningur má taka hámark 3 mínútur.
- Flutningur má vera á íslensku eða ensku.
- Gæta þarf þess að vera ekki særandi gagnvart einstaklingum og/eða hópum.
- Ljóðið eða textinn má ekki hafa verið útgefin í prentuðu formi.
- Það má nota leikmuni (props), en ekki hljóðfæri.
Hvernig sæki ég um þátttöku?
Þú sendir inn umsókn á netfangið: ljodaslamm@borgarbokasafn.is.
Umsóknarfrestur til og með 20. janúar
Í umsókninni þarf að koma fram:
- Nafn flytjanda
- Aldur (aldurstakmark: 16 ára og eldri)
- Hugmynd að atriði / flutningi
Hvað er ljóðaslamm?
Ljóðaslamm er keppni í tjáningu þar sem orðið og ljóðið eru aðalatriðin. Flutningurinn er sviðslist og getur tengst ýmsum sviðslistum. Hefðbundinn ljóðaupplestur telst ekki til ljóðaslamms, heldur er áherslan á ljóðaflutning sem sviðslist og getur flytjandi/flytjendur farið með ljóðið samhliða tónlist, myndlist eða leiklist. Dómnefnd dæmir svo hvert atriði út frá ljóðinu sjálfu, auk ástríðu og eldmóðs í flutningi, stíl og innihaldi og stundum líka út frá viðbrögðum áhorfenda.
Ljóðaslammið á rætur sínar að rekja til Chicago á níunda áratugnum. Hugmyndin með fyrstu keppninni var að færa ljóðið frá akademíunni til almennings. Bandaríska ljóðskáldinu Marc Smith fannst ljóðasenan orðin stíf og stirðbusaleg svo hann hóf tilraunir á „opnum hljóðnema“ ljóðakvöldum með því að snúa þeim upp í keppi og fá þátttakendur til þess að slamma af eldmóði og með stíl til þess að hrista upp í hlutunum.
Námskeið í ljóðaslammi
Námskeið í ljóðaslammi verða í boði haustið 2024. Fylgist með á miðlunum okkar!
Sigurvegarar fyrri ára
2024 - Þór Wiium
2023 - Sunna Benjamínsdóttir Bohn
2017 - Jón Magnús Arnarsson
2015 - Halldóra Líney Finnsdóttir og Hekla Baldursdóttir
2014 - Brynjar Jóhannesson
2013 - Kælan mikla - Sólveig Matthildur Kristjánsdóttir, Laufey Soffía Þórsdóttir og Margrét Rósa Dóru- Harrysdóttir
2012 - NYIÞ
Kælan mikla
Kælan mikla sigraði Ljóðaslamm Borgarbókasafnsins árið 2013 svo þær eiga tíu ára afmæli þegar næsta Ljóðaslamm verður haldið. Á þessum áratug hefur ýmislegt á daga þeirra drifið, en sveitin hefur meðal annars spilað á hátíðum í Evrópu og Bandaríkjunum og hitað upp fyrir Robert Smith í The Cure, Pixies, Placebo og frönsku post-metal sveitina Alcest.
Úr viðtali sem birtist í Fréttablaðinu 2013, eftir sigurinn: Að sögn söngvarans Laufeyjar Soffíu Þórsdóttur var Kælan mikla stofnuð í kringum keppnina.
„Sólveig er mjög mikið í því að semja. Við vorum að leika okkur að spila saman og hún var búin að skrá sig í keppnina en vissi ekki hvað hún ætlaði að gera. Okkur fannst það koma vel út að flytja ljóðin hennar saman,“ segir hún. „Það getur vel verið að við höldum áfram að semja við ljóðin hennar eftir þetta.“ Aðspurð segir Laufey Soffía sigurinn hafa komið þeim á óvart. „Já, þetta var rosalega skemmtilegt.“
Kæluna miklu skipa þær Laufey Soffía, Margrét Rósa Dóru-Harrysdóttir og Sólveig Matthildur Kristjánsdóttir.
(Ljósmynd: Magnús Andersen)