BORGARBÓKASAFNIÐ
Gerðubergsráðstefnan
Árleg ráðstefna um barna- og unglingabókmenntir.
Læsi á stöðu og baráttu kvenna
Almenningsbókasöfn um land allt sameinuðu krafta sína undir merkjum verkefnisins Læsi á stöðu og baráttu kvenna í tilefni af Kvennaári 2025. Boðið var upp á fjölbreytta dagskrá með lestur, samveru og bókmenntir í forgrunni. Einnig var útbúin sérstök sveigjanleg bókmenntaganga með sögum og textum kvenna sem hafa verið prentaðir á handhæg spjöld sem eru til láns á bókasöfnum víðs vegar um landið.