BORGARBÓKASAFNIÐ

Valgeir Gestsson, sérfræðingur á Borgarbókasafninu Grófinni, er forfallinn tónlistarunnandi og hefur auk þess gaman af því að grúska og afla sér fróðleiks um ólík viðfangsefni. Beðinn um að mæla með einhverju góðu í fríið stingur hann upp á nokkrum sumarlegum hljómplötum og bókinni Stiklað á stóru um næstum allt eftir Bill Bryson.
Stiklað á stóru um næstum allt er frekar efnismikil fræðibók og kannski ekkert endilega fyrsta bókin sem fólk almennt tæki með sér í sumarfrí, en þú mælir með henni?
„Já, því þetta er einfaldlega frábærlega skemmtileg bók um sögu vísindanna,“ svarar Valli hress í bragði. Hann segir Bryson nálgast viðfangsefnið á mjög áhugaverðan máta og segja sögur af fólki sem er að bralla eitthvað sniðugt í hinum ýmsu afkimum vísindanna. „Ég las áður bókina hans um William Shakespeare og finnst hann bara hafa svo skemmtilega höfundarrödd.“
Valli bætir við að útgáfa fyrrnefndu bókarinnar á íslensku, Stiklað á stóru um næstum allt, sé bæði stór og vegleg, með fullt af stórum myndum, þannig að við nánari umhugsun mæli hann kannski frekar með að í sumarfríið taki fólk með sér kiljuna á frummálinu, A Short History of Nearly Everything. Sú útgáfa sé einmitt líka fáanleg á Borgarbókasafninu.
Ertu almennt sólginn í fræðibækur?
„Já, ég les fræðibækur og skáldsögur til um það bil til jafns og örugglega meira af fræðibókum,“ segir hann og útskýrir að eftir að hafa lært bókmenntafræði í HÍ hafi hann einfaldlega fengið tímabundið nóg af skáldsögum og handahófskenndum túlkunarleiðum. Hann hafi langað í eitthvað meira „konkret“ og því sökkt sér í bækur, aðallega um eðlisfræði og stjörnufræði fyrir almenning og hámað í sig allt eftir Carl Sagan, John Gribbin og Stephen Hawking.
„Svo lánaði vinur minn mér bók sem breytti algjörlega heimsmynd minni: Ljósið eftir Richard Feinman, sem kom út í ritröðinni lærdómsrit hjá hinu íslenska bókmenntafélagi,“ segir hann og kveðst geta mælt með þeirri bók fyrir hvern sem er. „Því ef þú lest hana muntu sjá heiminn í nýju ljósi.“
Þú ert greinilega svolítill grúskari.
Valli kinkar kolli og hlær. „Já, það er það sem ég geri mér til skemmtunar og svo heppilega vill til að það nýtist líka vel í vinnunni,“ bendir hann á, en á Borgarbókasafninu sér Valli auk þess um tónlistardeildina í Grófinni. Nokkuð sem hann segir koma sér vel, enda sé hann búinn að vera forfallinn tónlistarunnandi frá unga aldri og hlusti satt að segja á næstum því „allan fjandann“, eins og hann orðar það. „Næstum því segi ég, því það er enginn í alvörunni alæta á tónlist og mér finnst alveg eitt og annað beinlínis leiðinlegt,“ viðurkennir hann.
Á hvernig tónlist hlustarðu helst?
„Ég set nú yfirleitt svartmálm, djass, trip-hop og kammermúsík til skiptis á fóninn,“ svarar hann. „En ætli ég hlusti samt ekki bara mest á beisik pabbarokk,“ segir hann og glottir.
Einhverjir sérstakir tónlistarmenn í uppáhaldi?
„Úff, þeir eru allt of margir til að telja þá alla upp, enda gerir dóttir mín nú oft grín að því hvað ég segi oft að einhver hljómsveit sé mikil uppáhaldshljómsveit! En ætli það sem falli best að mínum smekk séu ekki bara hljómsveitir sem hafa tvo gítara, bassa, trommur og ekkert kjaftæði. Samt elska ég líka að hlusta á allskonar kjaftæði. Til dæmis orgelmúsík eftir Bach!“
Á hvað ertu að hlusta á um þessar mundir?
„Sko, ég hlusta alltaf á heilar plötur í einu. Þá er einmitt heppilegt að hafa geislaspilara í bílnum og aðgang að þessu stórkostlega safni sem við höfum hérna á safninu í Grófinni.“ Rétt í þessu hafi hann verið að skila á safnið fyrstu Rage Against the Machine-plötunni sem hvert mannsbarn eigi að þekkja. „Svo er ég á leiðinni til Svíþjóðar þannig að ég hef verið að hita upp með sænskri sumartónlist; Cardigans, Abba, Dungen og að sjálfsögðu Bob Hund, sem er mikil uppáhaldshljómsveit,“ segir hann kíminn.
En ef þú ættir að velja eina plötu til að taka með í sumarfríið, hver yrði fyrir valinu?
„Í Stokkhólmi ætla ég að skella mér á tónleika með Queens of the Stone Age, sem er líka mikil uppáhaldshljómsveit. Sú sveit hefur sent frá sér mikið af frábærum plötum, þannig að ég tæki eina af þeim plötum með mér í frí. Eflaust Lullabies to Paralyze frá árinu 2005. Hún er algjörlega frábær og til bæði á vínil og geisladisk hjá okkur í tónlistardeildinni.“
Geturðu mælt með einni, tveimur góðum plötum til að hlusta á í sumar?
„Sumar plötur innihalda mikið af sumri. The Boy With the Arab Strap með Belle and Sebastian er ein þeirra og ég get því hiklaust mælt með henni. Svo mæli ég með Eniga Meniga með Olgu Guðrúnu Árnadóttur. Hún er mögulega besta plata Íslandssögunnar!“
Hér fyrir neðan má finna lista yfir þær bækur og plötur sem Valli mælir með og til eru hjá Borgarbókasafni.
Hér má finna frekari upplýsingar um bókakost Borgarbókasafnsins og hér um vinylplöturnar.
Nú þegar margir borgarbúar eru á leið í sumarfrí eða í það minnsta farnir að huga að sumarfríi, er upplagt að kíkja við á Borgarbókasafninu og byrgja sig upp af bókum, plötum, spilum eða öðru skemmtilegu til að skella með í ferðatöskuna eða njóta heima við í rólegheitum. En hvað er sniðugt að taka með úr öllum þeim gersemum sem safnið geymir? Í greinaröðinni Ég fer í fríið leitum við ráða hjá starfsfólki safnsins og biðjum það að mæla með einhverju góðu úr safnkostinum til að taka með í fríið.