Það er vel hægt að gleyma sér innan um bækurnar á Borgarbókasafninu enda umfjöllunarefni þeirra allt milli himins og jarðar.
Hvort sem þú ert unnandi góðra glæpasagna, ævisagna eða Manga teiknimyndabóka eða þig þyrstir í fróðleik um blóm, ljósmyndir eða sálfræði, þá finnur þú það á safninu.
Hérmá finna upplýsingar um allar þær bækur sem til eru á Borgarbókasafninu og í kössunum fyrir neðan hina ýmsu flokka bóka. Einnig er hægt að fá spil send á það safn sem þér er næst. Það er gert með því að skrá sig inn á borgarbokasafn.leitir.is eða með aðstoð starfsfólks á öllum átta söfnunum.