Á Borgarbókasafninu Grófinni má finna fjölbreytta tónlist í formi geisladiska og á vínylplötum. Það er mjög gaman að gramsa í tónlistsardeildinni á 5. hæðinni þar sem leynast stjörnur á borð við Laufey, Víking Heiðar, Bad Bunny og Taylor Swift í bland við eldri gullmola. Það er einnig velkomið að skella plötu á fóninn og njóta á staðnum.
Auðvitað er líka hægt að taka frá tónlist og myndefni á vefnum.
Lánstími á tónlist eru 14 dagar.