BORGARBÓKASAFNIÐ

Guttormur Þorsteinsson, sérfræðingur á Borgarbókasafninu Kringlunni, er að eigin sögn snemmmiðaldra bókavörður og kattaeigandi sem forlögin dæmdu til húsfélagsformennsku. Hann er líka mikill lestrarhestur, hefur lesið Hobbitann eftir J.R.R. Tolkien nokkrum sinnum og fyllist ávallt löngun til að lesa hana aftur þegar hann fer út í sveit.
„Hobbitinn var fyrst lesin fyrir mig í nestistímum í 6. bekk. Ég las hana svo sjálfur þegar ég fékk hana gefins jólin 2001 og náði að klára hana áður en ég sá fyrstu Hringadróttinssögumyndina á annan í jólum. Hef ég lesið hana allavega tvisvar síðan og þegar ég fer út í sveit fyllist ég alltaf löngun til þess að endurlesa hana. Það er eitthvað við þetta ferðalag Bilbó og dverganna sem er bæði svo æsilegt og huggulegt og minnir mig á sumarbústaði.“
Guttormur segir að hann mætti vera duglegri við að flétta lestur saman við frí og ferðalög, en honum finnist þó nauðsynlegt að taka með sér allavega tvær bækur í ferðalög sem er þá hægt að grípa í í flugvélinni eða bílnum.
Lestu öðruvísi bækur á sumrin en á veturna?
„Á veturna er ég meira í fagurbókmenntum og stekk svo kannski á eitthvað sem ég finn hérna á safninu og er í umræðunni. En á sumrin þá vil ég bara lesa eitthvað skemmtilegt og þá dett ég í fantasíur og vísindaskáldsögur.
Eins og hjá mörgum þá hefur lesturinn kannski færst svolítið frá bókum yfir á snjalltæki en mér finnst enn alveg nauðsynlegt að lesa allavega eina skáldsögu á mánuði.“
Áttu eftirminnilega eða uppáhalds sumarlestursminningu?
„Ég man eftir utanlandsferðum sem unglingur, til Strassborgar og Korsíku, þar sem var ekki loftkæling á staðnum en yfir 30 stiga hiti og ég leitaði skjóls í skugganum til þess að lesa Vonnegut, Philip K. Dick og William Gibson. Klassískar bókmenntir fyrir ákveðna týpu af unglingsstrák en mjög eftirminnilegar.
Í dag hef ég mest gaman af myrkum og skrítnum furðusögum eða mjög stórsögulegri sagnfræði.“
Hér fyrir neðan má finna lista yfir þær bækur sem Guttormur mælir með og til eru hjá Borgarbókasafni.
Nú þegar margir borgarbúar eru á leið í sumarfrí eða í það minnsta farnir að huga að sumarfríi, er upplagt að kíkja við á Borgarbókasafninu og byrgja sig upp af bókum, plötum, spilum eða öðru skemmtilegu til að skella með í ferðatöskuna eða njóta heima við í rólegheitum. En hvað er sniðugt að taka með úr öllum þeim gersemum sem safnið geymir? Í greinaröðinni Ég fer í fríið leitum við ráða hjá starfsfólki safnsins og biðjum það að mæla með einhverju góðu úr safnkostinum til að taka með í fríið.