BORGARBÓKASAFNIÐ

Þorkell Már Ingólfsson, sérfræðingur á Borgarbókasafninu Árbæ, er mikill sagnfræðiunnandi.
Þorkell les mikið í fríum og á ferðalögum erlendis, kaupir sér þá gjarnan bók í fríhöfninni til að lesa í flugvélinni og aðra í góðri bókabúð erlendis til að hafa á heimleiðinni. Þegar hann er beðin um að benda á góða bók í sumarfríið, dregur hann fram bókina Ragnarök.
„Ég les alls konar bækur í fríum og á ferðalögum. Til dæmis sagnfræði eins og bókina Ragnarök eftir séra Þórhall Heimisson. Ég les oft lengri bækur á veturna en þá get ég verið fleiri vikur með hverja bók. Styttra lesefni verður þá fyrir valinu á sumrin.“
Hvað vakti áhuga þinn á þessari bók séra Þórhalls?
„Bókin hans Þórhalls er sérstaklega áhugaverð en hún fjallar um helstu stórorrustur mannkynssögunnar. Því miður er þetta sígilt umfjöllunarefni eins og ástand heimsins í dag sýnir glögglega.“
Þorkell kveðst almennt vera áhugasamur um sagnfræði og þá helst hernaðarsagnfræði enda sé „slíkt sífellt á dagskrá“, því miður.
En áttu þér uppáhalds höfund?
„Uppáhaldshöfundurinn minn er Lee Child og svo hef ég áhuga á góðum sagnfræðibókum, til dæmis um krossferðirnar svo að eitthvað sé nefnt.“
Áttu eftirminnilega eða uppáhalds sumarlestursminningu?
„Ég á góða sumarlestursminningu um Lee Child-bók, Persuader [ísl.: Fórnardauði], sem ég keypti í fríhöfninni og las í París,“ segir hann og mælir einnig með bókinni Crusaders: An epic history of the wars for the Holy Lands eftir Dan Jones.
Hér fyrir neðan má finna lista yfir þær bækur sem Þorkell mælir með og til eru hjá Borgarbókasafni.
Hér má finna frekari upplýsingar um bókakost Borgarbókasafnsins.
Nú þegar margir borgarbúar eru á leið í sumarfrí eða í það minnsta farnir að huga að sumarfríi, er upplagt að kíkja við á Borgarbókasafninu og byrgja sig upp af bókum, plötum, spilum eða öðru skemmtilegu til að skella með í ferðatöskuna. En hvað er sniðugt að taka með úr öllum þeim gersemum sem safnið geymir? Í greinaröðinni Ég fer í fríið leitum við ráða hjá starfsfólki safnsins og biðjum það að mæla með einhverju góðu úr safnkostinum til að taka með í fríið.