BORGARBÓKASAFNIÐ

Rut Ragnarsdóttir, safnstjóri Borgarbókasafnsins Kringlunni og Sólheimum ætlar að lesa bókina Menntuð eftir Tara Westover í sumarfríinu.
Hvað vakti áhuga þinn á þessari bók?
„Ég hafði heyrt mikið lof um Menntuð og var forvitin að lesa sanna sögu um manneskju sem ólst upp við svo óvenjulegar aðstæður en náði samt ótrúlega langt. Mér finnast ævisögur og sjálfsævisögulegar bækur oft mjög áhugaverðar. Ég hef gaman af því að kynnast lífi og reynslu fólks sem hefur farið allt aðra leið en ég sjálf.“
Lestu öðruvísi bækur á sumrin en á veturna?
„Já, á sumrin les ég yfirleitt meira og vel oft léttari bækur. Bestu lestrarminningarnar mínar eru úr sumarfríum þegar ég hef fundið bók sem ég get einfaldlega ekki lagt frá mér. Á veturna er ég líklegri til að velja eitthvað aðeins þyngra eða meira krefjandi.“
Áttu þér uppáhalds tegundir bókmennta?
„Ég elska góðar sjálfstæðar skáldsögur, en les líka mikið af ævintýrabókum og svo er ég líka hrifin af mjúkum vísindaskáldssögum.“
Hver er uppáhalds höfundurinn þinn?
„Uppáhaldshöfundurinn minn er líklega Dan Brown, svolítið sakbitin sæla! Bækurnar hans eru spennandi og hraðlesnar. Ég mæli sérstaklega með nýjustu bókinni hans, Hinn æðsti leyndardómur.“
Geturðu mælt með einhverjum góðum bókum fyrir sumarið?
„Já, ég skal nefna nokkrar nýlegar og klassískar í bland. Mér dettur til dæmis í hug Glerkastalinn eftir Jeannette Walls, sem er ógleymanleg saga um erfiða en einstaka æsku og ótrúlega seiglu.
Svo er það I'm Glad My Mom Died eftir Jennette McCurdy. Hreinskilin, fyndin og átakanleg sjálfsævisaga sem hefur slegið í gegn.
Project Hail Mary eftir Andy Weir er bráðskemmtilegt geimævintýri fullt af spennu, húmor og óvæntri vináttu, svo er hún líka nýbúin að vera í bíó og er ekki síðri á hvíta tjaldinu.
Dark Matter eftir Blake Crouch er hraðlesin spennusaga um samhliða veruleika og örlögin sem hefðu getað orðið.
Tímaráðuneytið eftir Kaliane Bradley er frumleg og heillandi saga um tímaflakk, ástir og leyndarmál.
Sea of Tranquility eftir Emily St. John Mandel er falleg og hugvekjandi vísindaskáldsaga sem tengir saman fólk og örlög þvert á aldir.
Á náttborðinu núna er síðan Yesteryear eftir Caro Claire Burke. Þetta er skemmtileg og grípandi skáldsaga um tímaflakk þar sem ung kona ferðast til fortíðarinnar og uppgötvar að lífið í „þá gömlu góðu daga“ var mun flóknara en hún hafði ímyndað sér.
Þær eru allar mjög grípandi og henta vel í sumarfrí, hvort sem það er í sólstól, sumarbústað eða flugvél.“
Hér fyrir neðan má finna lista yfir þær bækur sem Rut mælir með og til eru hjá Borgarbókasafni.
Hér má finna frekari upplýsingar um bókakost Borgarbókasafnsins.
Nú þegar margir borgarbúar eru á leið í sumarfrí eða í það minnsta farnir að huga að sumarfríi, er upplagt að kíkja við á Borgarbókasafninu og byrgja sig upp af bókum, plötum, spilum eða öðru skemmtilegu til að skella með í ferðatöskuna. En hvað er sniðugt að taka með úr öllum þeim gersemum sem safnið geymir? Í greinaröðinni Ég fer í fríið leitum við ráða hjá starfsfólki safnsins og biðjum það að mæla með einhverju góðu úr safnkostinum til að taka með í fríið.