BORGARBÓKASAFNIÐ
Tónlist

Hér verður hægt að finna nýja tónlist á safninu, skemmtilega þemalista og meðmæli starfsfólks. Við eigum fjölbreytt og litskrúðugt úrval af tónlist á safninu sem hægt er að taka að láni. Tónlistin er bæði í formi geisladiska og á vínylplötum. Við mælum með að heimsækja 5. hæðina í Grófinni til að gramsa í tónlistardeildinni. Þar er einnig velkomið að setja plötu á fóninn og njóta. Auðvitað er líka hægt að taka frá tónlist á vefnum. Lánstími á tónlist eru 14 dagar.