BORGARBÓKASAFNIÐ

Birna Kristbjargardóttir, bókavörður á Borgarbókasafninu Árbæ, hefur stundað hannyrðir frá unga aldri og er að eigin sögn alltaf með eitthvað á prjónunum.
Það kemur því ekki á óvart þegar hún kveðst ætla að taka góða prjónabók með sér í fríið, Ljúflingar: prjónað á smáa og stóra eftir Hanne Andreassen Hjelmåsn og Torunn Steinsland.
„Ég fékk þessa bók í jólagjöf frá syni mínum fyrir nokkrum árum og er búin að prjóna heilmikið upp úr henni og ætla að halda því áfram í fríinu. Hún gefur svo góðar og ítarlegar leiðbeiningar,“
segir Birna sem er mikil áhugakona um hannyrðir.
„Já, ég er alltaf með eitthvað á prjónunum. Prjónaði fyrstu flíkurnar, húfu og trefil, á dúkkuna mína þegar ég var 6 ára. Ég elska líka að hekla og sauma út og nýti mér því allskonar hannyrðabækur, allan ársins hring.“
Hvað fleira les Birna?
„Ég hef verið mjög upptekin af bókaflokki Lucindu Riley um Systurnar sjö. Þetta er bækur sem má flokka sem sagnfræðilegan skáldskap og ráðgátur og mér finnst þær svaklega góðar og vel skrifaðar.“
En skyldi hún nýta sér tæknina og hlusta á hljóðbækur?
„Já, ég not Libby-appið mikið og hlustaði á mjög athyglisverða bók á Rafbókasafninu fyrir skömmu sem heitir Theo of Golden eftir Allan Levi.* Þetta er ein fallegasta saga sem ég hef nokkru sinni lesið/hlustað á. Mæli með hundrað prósent.“
*Rafbókasafnið er ókeypis fyrir öll þau sem eiga bókasafnskort og má nálgast upplýsingar um skráningu og notkun Rafbókasafnsins hér.
Hér fyrir neðan má finna lista yfir þær bækur sem Birna mælir með og til eru hjá Borgarbókasafni.
Hér má finna frekari upplýsingar um bókakost Borgarbókasafnsins.
Nú þegar margir borgarbúar eru á leið í sumarfrí eða í það minnsta farnir að huga að sumarfríi, er upplagt að kíkja við á Borgarbókasafninu og byrgja sig upp af bókum, plötum, spilum eða öðru skemmtilegu til að skella með í ferðatöskuna. En hvað er sniðugt að taka með úr öllum þeim gersemum sem safnið geymir? Í greinaröðinni Ég fer í fríið leitum við ráða hjá starfsfólki safnsins og biðjum það að mæla með einhverju góðu úr safnkostinum til að taka með í fríið.