BORGARBÓKASAFNIÐ

Auðun Gunnarsson, bókavörður á Borgarbókasafninu Kringlunni hefur gaman af skáldsögum og unglingabókum og slær ekki hendinni á móti góðum krimma. Í sumarfríinu er hann ákveðinn í að lesa Ljónið eftir Hildi Knútsdóttur, enda segir hann bækur Hildar bæði óhugnalegar og spennandi.
Hvað vakti áhuga þinn á þessari bók Hildar?
„Steinunn samstarfskona mín mælti með henni og svo hafði frænka mín líka lesið hana og talað mjög vel um hana. Þá vildi ég auðvitað lesa hana líka,“ segir Auðun hress í bragði.
Spurður hvort hann hafi lesið fleiri bækur eftir Hildi Knútsdóttur kinkar Auðunn umsvifalaust kolli.
„Já, ég hef lesið Þríleikinn um Ljónið, Nornina og Skóginn ásamt Vetrarhörkum og Vetrarfríi.“
Hvað er það við bækur Hildar sem höfðar til þín?
„Mér finnst þær vera skemmtilega óhugnanlegar á köflum, en um leið mjög spennandi,“ segir hann.
En eru einhverjar bækur í uppáhaldi nú um stundir?
„Afleggjarinn eftir Auði Övu Ólafsdóttur og Gauragangur eftir Ólaf Hauk Símonarson eru báðar í miklu uppáhaldi hjá mér.“
Lestu öðruvísi bækur á sumrin en á veturna?
„Nei, eiginlega ekki. Ég les bara mikið allan ársins hring, sama hvaða árstíð er.“
Er einhver tegund bókmennta sem höfðar til þín umfram aðrar?
„Ég er sérstaklega hrifin af skáldsögum og unglingabókum, en fæ mér líka gjarnan góðan krimma inn á milli. Svo les ég töluvert á sænsku og finnst gaman að blanda sænskum bókum við lesturinn.“
Hér fyrir neðan má finna lista yfir þær bækur sem Auðun mælir með og til eru hjá Borgarbókasafni.
Hér má finna frekari upplýsingar um bókakost Borgarbókasafnsins.
Nú þegar margir borgarbúar eru á leið í sumarfrí eða í það minnsta farnir að huga að sumarfríi, er upplagt að kíkja við á Borgarbókasafninu og byrgja sig upp af bókum, plötum, spilum eða öðru skemmtilegu til að skella með í ferðatöskuna eða njóta heima við í rólegheitum. En hvað er sniðugt að taka með úr öllum þeim gersemum sem safnið geymir? Í greinaröðinni Ég fer í fríið leitum við ráða hjá starfsfólki safnsins og biðjum það að mæla með einhverju góðu úr safnkostinum til að taka með í fríið.