BORGARBÓKASAFNIÐ

Tinna Birna Björnsdóttir, sérfræðingur á Borgarbókasafninu Úlfarsárdal, heldur mikið upp á glæpasögur og ætlar að byrja sumarfríið á einni sem lofar góðu.
Hvaða bók ætlar þú að lesa í fríinu?
„Lokar augum blám eftir Margréti S. Höskuldsdóttur. Þetta er glæpasaga sem gerist fyrir vestan um lögregluteymið Rögnu og Berg. Tveir kajakræðarar hverfa og par í leit að kyrrlátara lífi gerir upp hús sem reynist hafa slæma sögu. Þetta hljómar eins og hin besta bók til að lesa á milli máltíða í bústaðnum í sumar!“
Hvað vakti áhuga þinn á bókinni?
„Margrét hlaut glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann í ár fyrir bókina þannig að ég er spennt að geta loksins gefið mér tíma til að lesa hana. Ég las fyrri bók Margrétar um Rögnu og Berg og hef alltaf gaman af því að lesa framhaldssögur.“
Lestu öðruvísi bækur á sumrin en á veturna?
„Hmmm ... Ég held ekki. Ef svo er þá er það að minnsta kosti ómeðvitað!“
Áttu eftirminnilega eða uppáhalds sumarlestursminningu?
„Ég las Flateyjarbréfin eftir Kristjönu Friðbjörnsdóttur þegar ég var krakki og bókin varð fljótt í miklu uppáhaldi hjá mér. Eitt sumarið fór ég síðan til Flateyjar með fjölskyldunni og var staðráðin í að skrifa mín eigin bréf um ferðalagið, rétt eins og söguhetjan gerir í bókinni. Bréfin póstlagði ég hins vegar aldrei, en það er önnur saga.“
Hverjar eru uppáhaldsbækurnar þínar?
„Ég ákvað nýlega að lesa bækur Toshikazu Kawaguchi, meðal annars Before the Coffee Gets Cold og Tales from the Cafe, eftir að hafa heyrt látið vel af þeim. Bækurnar stóðu sannarlega undir væntingum. Þær eru fljótlesnar en skilja töluvert eftir sig þannig að ég get óhikað mælt með þeim!“
Áttu þér uppáhalds bókmenntategund?
„Mér finnst glæpasögur eiginlega alltaf skemmtilegastar. Það er svo gaman að lesa bækur sem grípa mann svo sterkum tökum að erfitt er að leggja þær frá sér. Þess á milli finnst mér hugljúfar skáldsögur um daglegt líf oft mjög notalegar aflestrar.“
Hér fyrir neðan má finna lista yfir þær bækur sem Tinna mælir með og til eru hjá Borgarbókasafni.
Hér má finna frekari upplýsingar um bókakost Borgarbókasafnsins.
Nú þegar margir borgarbúar eru á leið í sumarfrí eða í það minnsta farnir að huga að sumarfríi, er upplagt að kíkja við á Borgarbókasafninu og byrgja sig upp af bókum, plötum, spilum eða öðru skemmtilegu til að skella með í ferðatöskuna. En hvað er sniðugt að taka með úr öllum þeim gersemum sem safnið geymir? Í greinaröðinni Ég fer í fríið leitum við ráða hjá starfsfólki safnsins og biðjum það að mæla með einhverju góðu úr safnkostinum til að taka með í fríið.