BORGARBÓKASAFNIÐ

Birgir Kárason, bókavörður á Borgarbókasafninu Spönginni, er alæta á bækur en höfundurinn Terry Pratchett er í miklu uppáhaldi, sér í lagi Discworld-bækurnar sem Birgir segir vera skyldulesningu.
Hvaða bók valdirðu fyrir sumarfríið og afhverju?
„Eitt og annað eftir Þórarinn Eldjárn. Ég hef haft mikið dálæti á Þórarni síðan ég var unglingur, svo ég háma í mig allt sem hann gefur út. Hann hefur alveg sérstakt lag á íslenskri tungu og ritstíll og orðalag hans hefur alltaf heillað mig. Svo er hann sjúklega fyndinn, sem spillir ekki fyrir.“
Ertu ljóðaunnandi?
„Ég er almennt enginn sérstakur ljóðaunnandi. Ég tengi frekar við skáldin sjálf en bókmenntategundina. Gyrðir Elíasson og Einar Már Guðmundsson eru til dæmis frábærir pennar svo ég er líklegri til að lesa ljóð eftir þá en ljóðskáld sem ég þekki ekki fyrir.“
Áttu þér uppáhalds bókmenntategund-/ir?
„Nei, er alæta á bækur."
En uppáhalds höfund?
„Terry Pratchett heitinn. Discworld-bækurnar eru skyldulesning.“
Hverjar eru uppáhaldsbækurnar þínar um þessar mundir?
„Fnæs eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur, Varhugavert vor eftir Agöthu Christie (smásögusafn helstu sögupersóna hennar) og Allt frá hatti oní skó eftir Einar Má, sérlegan vin okkar hér á Borgarbókasafninu í Spönginni.“
Hér fyrir neðan má finna lista yfir þær bækur sem Birgir mælir með og til eru hjá Borgarbókasafni.
Hér má finna frekari upplýsingar um bókakost Borgarbókasafnsins.
Nú þegar margir borgarbúar eru á leið í sumarfrí eða í það minnsta farnir að huga að sumarfríi, er upplagt að kíkja við á Borgarbókasafninu og byrgja sig upp af bókum, plötum, spilum eða öðru skemmtilegu til að skella með í ferðatöskuna. En hvað er sniðugt að taka með úr öllum þeim gersemum sem safnið geymir? Í greinaröðinni Ég fer í fríið leitum við ráða hjá starfsfólki safnsins og biðjum það að mæla með einhverju góðu úr safnkostinum til að taka með í fríið.