BORGARBÓKASAFNIÐ

Heiðrún Gréta Viktorsdóttir vinnur sem sérfræðingur á Borgarbókasafninu í Spönginni og er að ljúka námi í japönsku tungumáli og menningu við Háskóla Íslands. Hún kann að meta bækur sem vekja upp tilfinningar og spurningar um tilvist og eðli mannsins. Í sumarfríinu ætlar Heiðrún að lesa Before the Coffee Gets Cold eftir Toshikazu Kawaguchi.
„Ég hef áhuga á japönskum bókmenntum, þannig að þessi skáldsaga Kawaguchi tengist einfaldlega áhugasviðinu,“ segir Heiðrún hress í bragði, þegar hún er spurð hvað hafi vakið áhuga hennar á bókinni.
Hún segist ekki þekkja til verka Kawaguchi og þetta verði því fyrsta bókin sem hún les eftir hann.
„En ég hef alltaf tekið sérstaklega eftir kápunum á bókum Kawaguchi því þær eru svo fallegar,“ tekur hún fram. Nú hafi hún loks bitið á agnið og sjái aldeilis ekki eftir því, því eftir að hafa gluggað aðeins í Before the Coffee Gets Cold sé ljóst að bókin lofi góðu. „Já, hún virðist bæði ætla að vera þægileg aflestrar og af þeirri gerð bóka sem ná að snerta hjartastrengi. Með öðrum orðum: Fullkomin í fríið.“
Áttu þér uppáhaldshöfund?
„Margaret Atwood,“ svarar Heiðrún umhugsunarlaust. „Bók hennar Handmaid’s Tale eða Saga þernunnar eins og hún heitir á íslensku á örugglega alltaf eftir að skipa sérstakan sess á topp fimm listanum hjá mér.“
En uppáhalds tegund bókmennta?
„Ég fíla bókmenntir sem vekja upp tilfinningar og spurningar um tilvist og eðli mannsins,“ segir hún og bætir við að það sé algjör plús ef sagan er grípandi og með femínísku ívafi.
Lestu öðruvísi bækur á sumrin en á veturna?
„Á veturna er ég meira í skólabókum, eðlilega, þar sem ég legg stund á nám í japönsku tungumáli og menningu við Háskóla Íslands. Annars er ekki mikill munur á milli árstíða hjá mér. Ég hef oftast bæði fræðibók og skáldsögu við höndina og skiptist svo á að lesa þær eftir því hvernig skapi ég er í.“
Þegar Heiðrún er spurð hvort hún eigi sér eftirminnilega sumarlestursminningu verður hún kímin á svip.
„Ó já. Ég man til dæmis vel þegar ég var í sólbaði á Spáni í 36 gráðu hita um árið að lesa The Girl from the Other Side: Siúil, a Rún,“ rifjar hún upp. „Lá á maganum, örugglega í um klukkustund, án þess að setja á mig sólarvörn og varð bókstaflega á litinn eins og Homeblest-kex. Alveg ógleymanlegt.“
Hún skellihlær við tilhugsunina.
En skyldu einhverjar bækur vera í uppáhaldi um þessar mundir?
„Já, ég mæli með bókinni Kjörbúðarkonan eftir Sayaka Murata,“ segir hún. „Þetta er skemmtileg bók og auðveld aflestrar og hún vekur upp virkilega áhugaverðar spurningar um hvers konar væntingar nútímasamfélag hefur til fólks.“
Hvað með bók sem hefur komið á óvart?
„Snákar og Eyrnalokkar eftir Hitomi Kanehara. Mér finnst notkun höfundars á myndlíkingum í tengslum við tilvistarástand aðalpersónunnar mjög áhugaverð. Ég vil ekki segja of mikið, en mæli klárlega með þessari bók.“
Hér fyrir neðan má finna lista yfir þær bækur sem Heiðrún Gréta mælir með og til eru hjá Borgarbókasafni.
Hér má finna frekari upplýsingar um bókakost Borgarbókasafnsins.
Nú þegar margir borgarbúar eru á leið í sumarfrí eða í það minnsta farnir að huga að sumarfríi, er upplagt að kíkja við á Borgarbókasafninu og byrgja sig upp af bókum, plötum, spilum eða öðru skemmtilegu til að skella með í ferðatöskuna. En hvað er sniðugt að taka með úr öllum þeim gersemum sem safnið geymir? Í greinaröðinni Ég fer í fríið leitum við ráða hjá starfsfólki safnsins og biðjum það að mæla með einhverju góðu úr safnkostinum til að taka með í fríið.