Um þennan viðburð

Tími
20:00 - 22:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
-
Bókmenntir
Tónlist
Ungmenni

Safnanótt | Ljóðaslamm

Föstudagur 6. febrúar 2026

Verið velkomin í Grófina á Safnanótt 2025 - við tökum vel á móti ykkur!
 

Safnanæturdagskrá á milli 18:00-22:00

20:00 Ljóðaslamm Borgarbókasafnsins | Sviðið er þitt
Hæfileikafólk á sviði ljóð- og sviðslistar flytja frumsamin verk
 

Úrslit Ljóðaslammsins tilkynnt
Við komumst að því hver ber sigur úr býtum í ljóðaslamminu. Sigurvegari tekur við glæsilegum verðlaunum og endurflytur verk sitt.
Við bjóðum hóp hæfileikaríkra slammara velkomin á svið. Þátttakendur stíga á stokk með frumsamin verk sín og sigurvegari verður valin í lok kvöldsins. Ljóðaslamm (Poetry Slam) felst í flutningi frumsamins ljóðs eða texta, þar sem áherslan er ekki síður á flutninginn en á ljóðið sjálft. Sagnalist og sviðslistir mætast í rafmögnuðum samruna!
 

Dómnefnd
Salka Valsdóttir (úr Reykjavíkurdætrum), Jón Magnús Arnarsson (vinningshafi Ljóðaslamms 2017) og Örvar Smárason (rithöfundur og meðlimur hljómsveitanna FM Belfast og MÚM.
 

Kynnir kvöldsins
Steiney Skúladóttir

Viðburður á Facebook.

Nánari upplýsingar veitir: 
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, sérfræðingur
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411 6100