Tilnefningar til Maístjörnunnar 2026  

Tilkynnt hefur verið um tilnefningar til Maístjörnunnar, ljóðabókaverðlauna sem Rithöfundasambands Íslands og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns standa að. Tilnefningar voru kynntar við athöfn í Gunnarshúsi. 

Maístjarnan er einu verðlaun á Íslandi sem veitt eru eingöngu fyrir útgefna íslenska ljóðabók. Verðlaununum er ætlað að vekja sérstaka athygli á blómlegri ljóðabókaútgáfu á Íslandi. 

 

Eftirtalin verk eru tilnefnd í ár: 

 

Fyrir vísindin eftir Önnu Rós Árnadóttur. Útgefandi: Benedikt 

Fimm ljóð eftir Eirík Örn Norðdahl. Útgefandi: Mál og menning 

Þyngsta frumefnið eftir Jón Kalman Stefánsson. Útgefandi: Benedikt 

Mara kemur í heimsókn eftir Natöshu S. Útgefandi: Benedikt 

Postulín eftir Sunnu Dís Másdóttur. Útgefandi Mál og menning 

Félagsland eftir Völu Hauks. Útgefandi: Mál og menning 


 

Á myndinni má sjá þau Sunnu Dís, Jón Kalman, Önnu Rós, Völu, Einar Kára Jóhannsson frá Benedikt og Veru Knútsdóttur frá Forlaginu.


 Myndin er fengin af heimasíðu Rithöfundasambands Íslands. Á myndinni má sjá þau Sunnu Dís, Jón Kalman, Önnu Rós, Völu, Einar Kára Jóhannsson frá Benedikt og Veru Knútsdóttur frá Forlaginu. 

 

Hér fyrir neðan má lesa umsagnir dómnefndar um verkin sem tilnefnd voru í ár. 

Umsagnir dómnefndar: 

Anna Rós ÁrnadóttirFyrir vísindin. Benedikt 2025. 

Frumlegt verk sem lætur sig varða tengslaleysi manneskjunnar við eigin tilfinningar. Ljóðmælandi eins og vísindamaður í eigin lífi. Sterkar og lúmskar lýsingar á andlegum hnökrum manneskjunnar og ómöguleikanum við að fanga þá í tungumál vísindanna. Höfundur skapar lífræna og kankvíslega lestrarupplifun. 
 

Eiríkur Örn Norðdahl: Fimm ljóð. Mál og menning 2025. 

Marglaga og margradda safn ljóða sem eru beinskeytt og dulræn í senn. Hátt og lágt mætist í fáguðu og meitluðu máli; sjoppan og sjónvarpsþættir, fjöllin og skýin. Höfundur sýnir á sér nýjar hliðar og afhjúpar rödd miðja vegu milli einlægni og íróníu. 
 

Jón Kalman Stefánsson: Þyngsta frumefnið: ljóð. Benedikt 2025. 

Beinskeytt og marglaga verk um sorg og söknuð. Ljóðin eru efnisþéttar frásagnir og nýtur hrynjandin sín í klifunum sem undirstrika mannlífið, tilfinningar, heiminn, guð og allt þar á milli. Höfundur leitar að kærleika og samkennd á þeim ógnartímum sem nú vofa yfir veröldinni. 
 

Natasha S.: Mara kemur í heimsókn. Benedikt 2025. 

Sterk bók og heildstæð, ástríðufull og heiðarleg, persónuleg og pólitísk. Mögnuð lýsing á kvíða, vanmætti og varnarleysi. Ljóðmælandi lærir að lifa með Möru, að gangast við ótta sínum í heimi sem er á hvolfi. Áleitið verk og tímabært. 
 

Sunna Dís Másdóttir: Postulín. Mál og menning 2025. 

Lágstemmd ljóð um ógn og fegurð náttúrunnar. Persónulegum og fíngerðum ljóðmyndum af innanstokksmunum og minningum er stillt upp gegn yfirgnæfandi fjalli og vetri. Heildstæð bók höfundar sem hefur góð tök á ljóðmáli og tilfinningatjáningu. 
 

Vala HauksFélagsland. Mál og menning 2025. 

Skemmtilegt verk og félagslegt; næm Íslandslýsing með samspili texta og mynda, í senn ljúf og kaldhæðin, angurvær og fyndin. Fjölbreytt sjónarhorn, þjóðlegar stemmningar og margbrotnar tilfinningar tjáðar á ljóðrænan hátt. 

 

Tilnefndar bækur eru allar til sýnis í anddyri Þjóðarbókhlöðunnar. 

Gjaldgengar voru allar útgefnar íslenskar ljóðabækur ársins 2025, alls 70, sem skilað var til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og fékk dómnefnd þær til umfjöllunar.  

Dómnefnd skipa Áslaug Jónsdóttir fyrir hönd Rithöfundasambandsins, Tómas Ævar Ólafsson fyrir hönd Landsbókasafnsins og Sveinn Yngvi Egilsson fyrir hönd Háskóla Íslands. 

Verðlaunin verða veitt við athöfn í Þjóðarbókhlöðunni þann 20. maí. 

Flokkur
UppfærtÞriðjudagur, 28. apríl, 2026 16:37