
Um þennan viðburð
Lestrarhátíð | Sögustund og (leður) Blökusmiðja með Rán Flygenring
Rán Flygenring les úr Blöku og stýrir (leður) Blökusmiðju fyrir alla fjölskylduna.
Í barnabókinni Blöku erum við stödd í svartasta skammdeginu og Vaka, Kókos og pabbi undirbúa sig fyrir sólarlandaferð. Þau ætla að heimsækja vatnsrennibrautagarð og belgja sig út af ís. En þegar þau koma auga á rammvillta leðurblöku grípur um sig skelfing og áform þeirra fljúga út í veður og vind. Óhrædd við myrkrið tekur Vaka afdrifaríka ákvörðun sem snýr veröldinni á hvolf.
Boðið verður upp á kakó og smákökur

Vikuna 22. - 29. nóvember, í aðdraganda aðventu, heldur Borgarbókasafnið lestrarhátíð fyrir börn og fjölskyldur í öllum átta bókasöfnum borgarinnar. Lögð er áhersla er á að skapa notalegar stundir fyrir börn og fjölskyldur. Höfundar mæta og lesa úr jólabókunum og stýra föndursmiðjum og boðið upp á heitt kakó og smákökur. Hér má finna dagskrá Lestrarhátíðar.
Lestrarhátíð Borgarbókasafnsins er styrkt af Barnamenningarsjóði og Bókasafnasjóði.
Viðburðurinn á Facebook
Nánari upplýsingar veitir:
Þorgerður Agla Magnúsdóttir
Verkefnastjóri | bókmenntir og lestrarhvatning
thorgerdur.agla.magnusdottir@reykjavik.is | 411 6149