Litríkt teppi á trégólfi, púði, tuskudýr, leikföng, bækur

Um þennan viðburð

Tími
10:30 - 11:30
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Aldur
0-5 ára
Tungumál
-
Liðnir viðburðir

Fjölskyldumorgnar | Krílahornið

Þriðjudagur 13. janúar 2026

Fjölskyldumorgnarnir eru óformlegar samverustundir, alla þriðjudagsmorgna. Þar myndast gott tækifæri til að kynnast öðrum fullorðnum með ungviði og skiptast á sögum um lífið, tilveruna og auðvitað börnin. Krílahornið er svæði í stöðugri þróun og tökum við gjarnan við hugmyndum frá aðstandendum ungra barna.

Heitt á könnunni fyrir þau fullorðnu og pelahitari á staðnum. Góð skiptiaðstaða er á salerni hússins.

Hittumst í Krílahorninu í Úlfarsárdal!

Bókasafnið á mikið til af forvitnilegum og fræðandi bókum og tímaritum sem tengjast uppeldi og umönnun ungbarna. Hægt er að glugga í efnið á staðnum og korthafar geta fengið það lánað heim. Svo er auðvitað mikið úrval af krílabókum, til að kveikja áhuga barnanna á bókmenntum!

Tilvalið er að taka með sunddót og dýfa sér í Dalslaug eftir Krílastundina en laugin er í sömu byggingu og bókasafnið.

Viðburður á Facebook

Allir fjölskyldumorgnar á Borgarbókasafninu. 

Kynnið ykkur barnadeildir Borgarbókasafnsins.


Nánari upplýsingar veitir:
Tinna Birna Björnsdóttir, sérfræðingur
tinna.birna.bjornsdottir@reykjavik.is | 4116270