
Um þennan viðburð
Safnanótt | Ljóðaslamm
Verið velkomin í Grófina á Safnanótt 2025 - við tökum vel á móti ykkur!
Safnanæturdagskrá á milli 18:00-22:00
20:00 Ljóðaslamm Borgarbókasafnsins | Sviðið er þitt
Hæfileikafólk á sviði ljóð- og sviðslistar flytja frumsamin verk
Úrslit Ljóðaslammsins tilkynnt
Við komumst að því hver ber sigur úr býtum í ljóðaslamminu. Sigurvegari tekur við glæsilegum verðlaunum og endurflytur verk sitt.
Við bjóðum hóp hæfileikaríkra slammara velkomin á svið. Þátttakendur stíga á stokk með frumsamin verk sín og sigurvegari verður valin í lok kvöldsins. Ljóðaslamm (Poetry Slam) felst í flutningi frumsamins ljóðs eða texta, þar sem áherslan er ekki síður á flutninginn en á ljóðið sjálft. Sagnalist og sviðslistir mætast í rafmögnuðum samruna!
Dómnefnd
Salka Valsdóttir (úr Reykjavíkurdætrum), Jón Magnús Arnarsson (vinningshafi Ljóðaslamms 2017) og Örvar Smárason (rithöfundur og meðlimur hljómsveitanna FM Belfast og MÚM.
Kynnir kvöldsins
Steiney Skúladóttir
Viðburður á Facebook.
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, sérfræðingur
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411 6100