Sunna Dís og Kvöldsónatan

Um þennan viðburð

Tími
20:00 - 21:00
Verð
Frítt
Aldur
Fullorðnir
Tungumál
íslenska
Bókmenntir
Spjall og umræður

Húslestur | Kvöldsónatan

Miðvikudagur 18. mars 2026

Hvernig hljómar að setjast niður á bókasafninu eftir langan dag, fá sér kaffibolla og hlusta á lifandi upplestur úr bók?  

Í vor verður boðið upp á huggulegar upplestrarstundir á Borgarbókasafninu í Úlfarsárdal.  Lesið verður upp úr vinsælustu bókum síðasta árs og geta gestir fengið sér sæti og notið þess að hlusta á upplesturinn sem Sunna Dís Másdóttir, rithöfundur og fyrrum bókmenntagagnrýnandi Kiljunnar, mun sjá um. Einnig mun gefast kostur á léttu spjalli að lestri loknum fyrir þau sem hafa áhuga. 

Í þetta skipti verður lesið upp úr skáldsögunni Kvöldsónatan eftir Ólaf Jóhann Ólafsson en bókin var metsölubók ársins 2025.  

 

Um bókina: 

Ungur drengur fylgist með föður sínum hjálpa erlendum hjónum að flytja flygil inn í húsið beint á móti heimili hans í Suðurgötu árið 1949. Sá atburður á eftir að hafa mikil áhrif á framtíð hans. Eftir glæsilegan tónlistarferil ytra  snýr hann loks aftur heim til Íslands í ferð sem neyðir hann til að horfast í augu við sjálfan sig og líf sitt, mistök sín og það sem hann hefur gert sjálfum sér og öðrum. 

 

Gestum er bent á að taka með sundfötin því hægt er að skella sér í sund í Dalslaug fyrir eða eftir upplesturinn.  

Komum saman og eigum notalega og nærandi stund á bókasafninu. 

Öll velkomin. 

 

Viðburðurinn á Facebook

 

Nánari upplýsingar veita: 

Þorgerður Agla Magnúsdóttir, verkefnastjóri | bókmenntir og lestrarhvatning 

thorgerdur.agla.magnusdottir@reykjavik.is  

Tinna Birna Björnsdóttir | Viðburðir 

Tinna.birna.bjornsdottir@reykjavik.is  

Bækur og annað efni