dublin literary award logo

Langlisti Dublin-bókmenntaverðlaunanna 2026


Langlisti Dublin bókmenntaverðlaunin 2026



Dublin bókmenntaverðlaunin verða afhent í þrítugasta og fyrsta skipti 21. maí næstkomandi á Alþjóðlegu bókmenntahátíðinni í Dublin á Írlandi. Verðlaunin hlýtur höfundur fyrir verk sem skrifað hefur verið á ensku eða þýtt yfir á ensku og nema verðlaunin 100.000 evrum eða tæplega 15 milljónum króna.

Nýverið var tilkynnt um hvaða 20 skáldverk prýða langlista verðlaunanna í ár. Hér fyrir neðan má sjá lista yfir verk, höfunda, þýðendur og útgefendur:


Creation Lake eftir Rachel Kushner (Bandaríkin). Útgefandi: Simon & Schuster. Tilnefnd af Chicago Public Library í Bandaríkjunum.

Dream Count by Chimamanda Ngozi Adichie (Nígería). Útgefandi: 4th Estate/Harper Collins. Tilnefnd af Almeida Garrett Borgarbókasafni Porto í Portúgal og Openbare Bibliotheek Amsterdam, Hollandi og Bibliotheca Alexandrina í Egyptalandi.

Endling eftir Maria Reva (Úkraína). Útgefandi: Penguin Random House / Doubleday / Knopf í Kanada. Tilnefnd af Ottawa Public Library í Kanada.

Gliff eftir Ali Smith (Bretland). Útgefandi: Hamish Hamilton / Penguin Random House í Bretlandi. Tilnefnd af Katona József Könyvtár í Ungverjalandi.

Good Girl eftir Aria Aber (afgönsk-þýsk). Útgefandi: Bloomsbury (Bretlandi) og Hogarth Press (Bandaríkjunum). Tilnefnd af Cleveland Public Library í Bandaríkjunum.

In Late Summer eftir Madalena Blažević (bosníu-króatísk). Þýðandi úr króatísku: Anđelka Raguž. Útgefandi: Linden Editions. Tilnefnd af Háskólabókasafninu í Bern í Sviss.

Intermezzo eftir Sally Rooney (Írland). Útgefandi: Faber / Farrar, Straus, Giroux (Bandaríkjunum). Tilnefnd af Redbridge Central Library og Liverpool Libraries and Information Service í Bretlandi.

Live Fast eftir Brigitte Giraud (Frakkland). Þýðandi úr frönsku: Cory Stockwell. Útgefandi: Ecco/HarperCollins. Tilnefnd af Bibliothèque municipale de Lyon í Frakklandi.

Ordinary Saints eftir Niamh Ní Mhaoileoin (Írland). Útgefandi: Manilla Press. Tilnefnd af LibrariesNI á Norður-Írlandi.

Our Evenings eftir Alan Hollinghurst (Bretland). Útgefandi: Picador. Tilnefnd af Richland Library í Bandaríkjunum.

Perspectives eftir Laurent Binet (Frakkland). Þýðandi úr frönsku: Sam Taylor. Útgefandi: Harvill, Vintage, Penguin Random House í Bretlandi. Tilnefnd af  Bibliothèques Municipales de Genève í Sviss.

The Antidote eftir Karen Russell (Bandaríkin). Útgefandi: Chatto & Windus/Vintage í Englandi og Knopf í Bandaríkjunum. Tilnefnd af Iowa City Public Library og
New Hampshire State Library í Bandaríkjunum.

The Brittle Age eftir Donatella Di Pietrantonio (Ítalía). Þýðandi úr ítölsku: Ann Goldstein. Útgefandi: Europa Editions í Bretlandi og Bandaríkjunum. Tilnefnd af Sistema Bibliotecario di Milano á Ítalíu.

The Creation of Half-Broken People eftir Siphiwe Gloria Ndlovu (Simbabve). Útgefandi:  Picador Africa / House of Anansi Press. Tilnefnd af City of Cape Town Library & Information Services í Suður-Afríku.

The Echoes eftir Evie Wyld (Bretland). Útgefandi: Vintage (Penguin Random House). Tilnefnd af Almenningsbókasafninu í Bruges í Belgíu.

The Emperor of Gladness eftir Ocean Vuong (Bandaríkin). Útgefandi: Jonathan Cape (Vintage, PRH) í Bretlandi og Penguin Press (Bandaríkin). Tilnefnd af Hartford Public Library í Bandaríkjunum.

The Empusium eftir Olga Tokarczuk (Pólland). Þýðandi úr pólsku: Antonia Lloyd-Jones. Útgefandi: Fitzcarraldo Editions. Tilnefnd af “Octavian Goga” Cluj bókasafninu í Rúmeníu.

The Original Daughter eftir Jemimah Wei (Singapúr). Útgefandi: Weidenfeld and Nicolson í Brelandi og Doubleday í Bandaríkjunum. Tilnefnd af National
Library Board í Singapúr.

There are Rivers in the Sky eftir Elif Shafak (bresk-týrkneski). Útgefandi: Viking. Tilnefnd af Biblioteca Nazionale “Vittorio Emanuele III í
Napolí á Ítalíu og Borgarbókasafninu í Prag í Tékklandi.

What I Know About You eftir Éric Chacour (Kanada). Þýðandi úr frönsku: Pablo Strauss. Útgefandi: Coach House Books og Gallic Books (Pushkin). Tilnefnd af Bibliothèque de Québec og Almenningsbókasafninu í Toronto í Kanada.
 

Hér að neðan má sjá skáldverk sem eru á langlistanum í ár og til í safnkosti Borgarbókasafnsins. Að auki má þar finna valin verk á íslensku eftir höfunda á langlistanum ásamt tilnefndum bókum Hildar Knútsdóttur og Satu Rämü.


Frekari upplýsingar um verk og höfunda sem eru á langlista Dublin-verðlaunanna 2026 má sjá hér.
 

69 verk frá 36 löndum voru tilnefnd til verðlaunanna í ár. Fulltrúar frá 80 bókasöfnum víðsvegar um heiminn stóðu að tilnefningunum, þar á meðal Borgarbókasafn Reykjavíkur. Á meðal tilnefndra verka mátti m.a. finna 20 frumraunir höfunda auk fimm írskra skáldverka og 30 þýddra verka úr 17 tungumálum, þeirra á meðal katalónsku, pólsku, brasilískri portúgölsku, kínversku, japönsku og íslensku.

Skáldsagan Myrkrið milli stjarnanna (e. The Night Guest) eftir Hildi Knútsdóttur voru meðal tilnefndra verka en skáldsagan kom út í enskri þýðingu síðla árs 2024. Einnig var tilnefnd glæpasagan Hildur (e. The Clue is in the Fjord) eftir finnska rithöfundinn Satu Rämö en hún hefur verið búsett á Ísafirði síðustu 20 ár. Hér má finna yfirlit yfir íslensk verk og höfunda sem hafa áður verið tilnefndir til verðlaunanna.

 

Flokkur
UppfærtFimmtudagur, 26. febrúar, 2026 10:21
Materials