Um þennan viðburð

Tími
08:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
íslenska og enska
Liðnir viðburðir

Fríbúð | Skiptumst á hrekkjavökubúningum

Mánudagur 21. október 2024 - Föstudagur 25. október 2024

Hrekkjavakan er handan við hornið og því er tilvalið að koma með gamla grímubúninga og skipta út fyrir “nýja” í Fríbúðinni.
Í Fríbúðinni verður sett upp fataslá þar sem hægt verður að hengja upp gamla búninga. Það má taka sér búning án þess að koma með annan í staðinn og eins má koma með búninga án þess að taka aðra af slánni. 

Í Fríbúðinni í Gerðubergi eru allir hlutir ókeypis. Þangað getur þú komið þegar þig vantar eitthvað eða þegar þú vilt gefa frá þér hluti sem þú þarft ekki lengur.

Viðburðurinn á facebook

Fríbúðin á instagram: @fribudin_gerdubergi

Kynnið ykkur heildardagskrá Borgarbókasafnsins í haustfríinu!

 

Nánari upplýsingar veitir:

Svanhildur Halla Haraldsdóttir, sérfræðingur
svanhildur.halla.haraldsdottir@reykjavik.is | 411 6170