Um þennan viðburð

Tími
11:00 - 16:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
Íslenska, English
Markaður

Vekjum vorið | Plöntuskiptimarkaður

Laugardagur 5. apríl 2025

Með hækkandi sól og vori í lofti sláum við upp plöntuskiptimarkaði.

Langar þig í nýjar plöntur eða blóm á heimilið? Nú er tækifæri til að taka afleggjara, grisja blómapottasafnið og kíkja við í Fríbúðinni. Allar plöntur velkomnar.

Þú getur komið með afleggjara, pottaplöntur, blómapotta og mögulega tekið nýja plöntu með þér heim.

Viðburðurinn er hluti af vorhátíð Fríbúðarinnar í Gerðubergi: Vekjum vorið. Með hátíðinni erum við að fagna hringrásinni og í boði eru viðburðir sem tengjast hinum ýmsu vorverkum. Í Fríbúðinni í Gerðubergi eru allir hlutir ókeypis, þangað er hægt að koma með hluti í góðu ástandi sem nýtast ekki lengur og taka heim með sér það sem vantar.

Viltu vita meira um Fríbúðina?
Viðburður á Facebook
Vekjum Vorið | Vorhátíð Fríbúðarinnar í Gerðubergi

 

Nánari upplýsingar veitir:
Atli Pálsson, sérfræðingur
atli.palsson@reykjavik.is | 411-6170