Um þennan viðburð

Tími
17:30 - 19:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
Íslenska
Fræðsla
Kaffistundir
Skapandi tækni

Fríbúð | Fatasóun og endurnýting textíls

Miðvikudagur 2. október 2024

Hvernig lengjum við líftíma textíls? Hvaða leiðir er hægt að fara til að endurnýta textíl, og lengja líftíma textíls í hringrásarkerfinu ? 

Katrín María Káradóttir veltir upp þessum spurningum í erindi sínu og spjalli og kynnir þau verkefni sem hún hefur leitt á þessu sviði.

Katrín María, fatahönnuður og prófessor við hönnunardeild Listaháskóla Íslands, hefur um árabil rannsakað fatasóun ásamt nemendum sínum í fatahönnun. Hún hefur frá 2014 leitt verkefnið Misbrigði sem er samstarfsverkefni nema á fatahönnunarbraut Listaháskóla Íslands og Fatasöfnunar Rauða Krossins. 

Viðburður á Facebook

 

Nánari upplýsingar:
Ilmur Dögg Gísladóttir, deildarstjóri í Gerðubergi.
ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is | 411 6170