Klúbbarnir okkar
Klúbbarnir á Borgarbókasafninu eru gríðarlega vinsælir þar sem skemmtilegar stundir skapast og góð vinátta myndast. Í klúbbunum fá börn og ungmenni tækifæri á að spjalla, grúska, hlusta á kósí lestur, búa til sögur, föndra og ýmislegt fleira. Þátttaka er ókeypis en skráning nauðsynleg.

Anime
Í Grófinni bjóða starfsmenn safnsins upp á vettvang fyrir börn og unglinga til að hittast og tengjast í kringum anime. Í klúbbnum er spjallað, teiknað, föndrað, spilað, horft og hvað annað sem tengist anime!
Klúbbur 10-12 ára
Einu sinni í mánuði, miðvikudaga kl. 15.30-17.00 - Grófinni 5. hæð
Dagsetningar fyrir vorönn 2026 væntanlegar.
Klúbbur 13-16 ára
Byrjum aftur 8. janúar og nú verður klúbburinn annan hvern fimmtudaga kl. 16.30-18.00 - Grófinni 5. hæð
Sjá dagsetningar á facebook
Sendið póst á holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is til að skrá ykkur í klúbbinn

Svakalega sögusmiðjan | Klúbbur fyrir skapandi krakka 9-12 ára
Barnabókahöfundarnir Eva Rún Þorgeirsdóttir og Blær Guðmundsdóttir miðla og gefa börnunum verfæri og góð ráð svo börnin geti nýtt sköpunarkraftinn og búið til sögur á sínum eigin forsendum.
Spöngin
Annan hvern þriðjudag kl. 15.30-17.00
Við hittumst: 13. janúar, 27. janúar, 10. febrúar, 24. febrúar, 10. mars, 24. mars og lokahittingur 7.apríl.
Skráning hefst 2. janúar á sumar.vala.is
Grófin
Annan hvern þriðjudag kl. 15.30-17.00
Við hittumst: 6. janúar, 20. janúar, 3. febrúar, 17.febrúar, 3. mars, 17. mars og lokahittingur 14. apríl.
Skráning hefst 2. janúar á sumar.vala.is
Nánari upplýsingar um klúbbana veita:
Anime
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri viðburða og fræðslu
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is
Svakalega sögusmiðjan
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, verkefnastjóri
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is