Um þennan viðburð

Tími
17:30
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Tungumál
Íslenska
Bókmenntir

Leshringur | Elsku drauma mín

Fimmtudagur 21. maí 2026

Í maí ræðum við Elsku Drauma mín, minningabók Sigríðar Halldórsdóttur eftir Vigdísi GrímsdótturSigríður Halldórsdóttir, dóttir Nóbelsskáldsins, segir frá lífi sínu, Auði móður sinni, föður sínum, systur sinni Guðnýju og hvernig var að alast upp á Gljúfrasteini. Vigdís Grímsdóttir skráir söguna ekki í tímaröð heldur er farið fram og til baka í tíma og fléttaðar inn hugleiðingar vina og ættingja Siggu ásamt einstaka ögrandi spurningum frá Vigdísi. 

Umfjöllun Rúv um bókina má finna hér og eins er hægt að bera saman við ævisögu systur hennar Dunu eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur sem kom nýlega út, Á Gljífrasteini eftir Eddu Andrésdóttur þar sem rætt var við móður Sigríðar, Auði Laxness, og auðvitað fjöldamargar ævisögur og minningabækur Halldórs Laxness sjálfs. 

Leshringurinn Sólkringlan hittist venjulega þriðja fimmtudag í mánuði kl. 17.30-18.30 í Borgarbókasafninu Kringlunni, frá september til maí. 

Þema vorsins 2026 er líf íslenskra (og írskra) kvenna á 20. öld. Dagskráin er eftirfarandi: 

  • 22. janúar: Leigjandinn eftir Svövu Jakobsdóttur og Smámunir sem þessir eftir Claire Keegan 
  • 19. febrúar: Ást á rauðu ljósi eftir Jóhönnu Kristjánsdóttur 
  • 19. mars: Bíbí í Berlín, ævisaga Bjargeyjar Kristjánsdóttur eftir Guðrúnu Valgerði Stefánsdóttur 
  • 16. apríl: Hansdætur eftir Benný Sif Ísleifsdóttur 
  • 21. maí: Elsku Drauma mín, minningabók Sigríðar Halldórsdóttur eftir Vigdísi Grímsdóttur 

 

Umsjón og skráning: 
Guttormur Þorsteinsson, sérfræðingur 
guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is | 411 6204 

Bækur og annað efni