Um þennan viðburð

Tími
16:00 - 17:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
Íslenska
Bókmenntir
Spjall og umræður

Húslestur | Blái pardusinn: Hljóðbók

Sunnudagur 19. apríl 2026

Hvernig hljómar að setjast niður á bókasafninu seinni part dagsins, fá sér kaffibolla og hlusta á lifandi upplestur úr bók?  

Í vor er boðið upp á huggulegar upplestrarstundir á Borgarbókasafninu í Úlfarsárdal.   

Lesið er upp úr vinsælustu bókum síðasta árs og geta gestir fengið sér sæti og notið þess að hlusta á upplesturinn sem Sunna Dís Másdóttir, rithöfundur og fyrrum bókmenntagagnrýnandi Kiljunnar, mun sjá um. Einnig gefst kostur á léttu spjalli að lestri loknum fyrir þau sem hafa áhuga. 

Í þetta skipti verður lesið upp úr skáldsögunni Blái pardusinn - hljóðbók eftir Sigrúnu Pálsdóttur en bókin hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki skáldverka fyrir árið 2025.  

 

Um bókina:

Blái pardusinn - hljóðbók er dramatísk gamansaga um hlustun og athygli, sagnfræði og skáldskap. 

Streymisveita ein hefur gefið út hljóðbókina Bláa pardusinn, örlagasögu sem innblásin er af ævintýralegu ferðalagi íslenskrar konu um Evrópu á tímum seinni heimsstyrjaldar. Hér segir frá þremur hlustendum bókarinnar og baráttu þeirra við að halda þræði í æsispennandi atburðarásinni mitt í daglegu amstri en höfundurinn, sem enginn veit hver er, gerir þeim ekki auðvelt fyrir. Dæmalaus frásögnin fer um víðan völl og illmögulegt er að henda reiður á hvað er skáldað og hvað ekki, líkt og kemur í ljós þegar leiðir hlustendanna þriggja liggja að lokum saman við óvenjulegar og þrúgandi aðstæður

Sigrún Pálsdóttir skrifar knappar, meitlaðar og innihaldsríkar sögur sem hafa vakið verðskuldaða athygli heima og erlendis. Fyrri bækur hennar hafa verið þýddar á fjölda tungumála og fyrir þær hefur hún hlotið verðlaun og tilnefningar. 

 

Gestum er bent á að taka með sundfötin því hægt er að skella sér í sund í Dalslaug fyrir eða eftir upplesturinn. Komum saman og eigum notalega og nærandi stund á bókasafninu. 

Öll velkomin. 

 

Viðburður á Facebook.

 

Nánari upplýsingar veita: 

Þorgerður Agla Magnúsdóttir, verkefnastjóri | bókmenntir og lestrarhvatning 
thorgerdur.agla.magnusdottir@reykjavik.is 

Tinna Birna Björnsdóttir | Viðburðir 
Tinna.birna.bjornsdottir@reykjavik.is 

Bækur og annað efni