langlisti Booker bókmenntaverðlaunanna 2026

13 bækur á langlista Alþjóðlegu Booker-bókmenntaverðlaunanna 2026

Nýverið var tilkynnt um hvaða bækur prýða langlista Alþjóðlegu Booker-bókmenntaverðlaunanna 2026. Dómnefndin las sig í gegnum 128 skáldsögur og smásagnasöfn og valdi að þessu sinni 13 verk á langlista verðlaunanna í ár. 

Formaður dómnefndar Natasha Brown sagði um valið: "Mörg verkanna á listanum fjalla um hrikalegar afleiðingar stríða en þar er líka að finna bækur um hversdagslegar nágrannaerjur, dularfull fjallaþorp, samsæri stórra lyfjafyrirtækja, nornir, ógæfusama elskendur, reimleika í fangelsi og óljósar vísanir í kvikmyndir. Blaðsíðufjöldi verkanna nær allt frá stuttum nóvellum og smásagnasöfnum, sem fara vel í vasa, upp í hnausþykkan doðrant. Og þrátt fyrir að upprunalegt útgáfuár verkanna á frummáli nái yfir fjóra áratugi er umfjöllunarefni allra verkanna bæði ferskt og nýstárlegt." Aðrir dómendarmenn auk Natasha eru: Marcus du Sautoy, Sophie Hughes, Troy Onyango og Nilanjana S. Roy. 
 

Dómnefnd alþjóðlegu booker verðlaunanna

 

Eftirfarandi verk og höfundar voru tilnefnd:

The Nights Are Quiet in Tehran eftir Shida Bazyar, þýðandi úr þýsku á ensku: Ruth Martin.

We Are Green and Trembling eftir Gabriela Cabezón Cámara, þýðandi úr spænsku á ensku: Robin Myers.

The Remembered Soldier eftir Anjet Daanje, þýðandi úr hollensku á ensku: David McKay.

The Deserters eftir Mathias Énard, þýðandi úr frönsku á ensku: Charlotte Mandell.

Small Comfort eftir Ia Genberg, þýðandi úr sænskur á ensku: Kira Josefsson.

She Who Remains eftir Rene Karabash, þýðandi úr búlgörsku á ensku: Izidora Angel.

The Director eftir Daniel Kehlmann, þýðandi úr þýsku á ensku:  Ross Benjamin.

 On Earth As It Is Beneath eftir Ana Paula Maia, þýðandi úr portúgölsku á ensku: Padma Viswanathan. 

The Duke eftir Matteo Melchiorre, þýðandi úr ítölsku á ensku: Antonella Lettieri. 

The Witch  eftir Marie NDiaye, þýðandi úr frönsku á ensku: Jordan Stump.

 Women Without Men by Shahrnush Parsipur, þýðandi úr persnesku á ensku: Faridoun Farrokh.

The Wax Child eftir Olga Ravn, þýðandi úr dönsku á ensku: Martin Aitken.

Taiwan Travelogue by Yáng Shuāng-zǐ, þýðandi úr mandarín-kínversku á ensku: Lin King 

 

Stuttlisti 6 verka sem tilnefnd eru til Alþjóðlegu Booker-bókmenntaverðlaunanna verður kynntur 31. mars næstkomandi og vinningshafi verðlaunanna verður tilkynntur á verðlaunahátíð í London 19. maí. 

 

Hér fyrir neðan má finna tilnefndar bækur sem til eru á Borgarbókasafninu og Rafbókasafninu sem og aðrar bækur eftir tilnefnda höfunda á íslensku og öðrum tungumálum.

 

 

Flokkur
UppfærtFöstudagur, 13. mars, 2026 16:29
Materials