
Um þennan viðburð
Sýning | Skissur verða að bók: Birna Daníelsdóttir
Í þessari sýningu getur þú séð inn í töfrandi heim barnabókanna. Myndhöfundar leyfa okkur að fylgjast með hugmyndavinnu og skissugerð sem að lokum verða að fullsköpuðum myndum í barnabókum.
Birna Daníelsdóttir sem er mynd- og rithöfundur að bókinn Ég bý í Risalandi, sem kom út árið 2025 og hlaut Sólfaxa - íslensku barnabókaverðlaunin og tilfnefningu til íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki barna- og unglingabóka.
Á sýningunni gefst gestum tækifæri til að skoða vinnuferlið hennar, ferðalagið frá hugmynd til lokamyndanna, sem og áhöldin og efnin sem hún notaði. En við gerð myndanna notaðist Birna við blandaða tækni, þar sem hún notast við gvass málningu, tréliti, vaxliti og ekki síst klippitæknina sem átti stóran þátt í skissuferlinu. Birna mun deila hinu skapandi ferli sem á sér stað áður en hið prentaða eintak er komið í hendurnar á börnunum.
Birna Daníelsdóttir er fædd í Svíþjóð árið 1981 og býr í Reykjavík ásamt fjölskyldu sinni. Hún útskrifaðist með B.Sc gráðu í Líffræði úr Háskóla Íslands 2008 og M.Sc í sjávarlíffræði frá háskólanum í Lundi í Svíþjóð. Í mörg ár starfaði hún svo í gæðaeftirliti örvefræðideildar við lyfjaframleiðslu áður en hún venti kvæði sínu í kross og lauk diplómanámi í teikningu frá Myndlistarskóla Reykjavíkur 2022. Þar lét hún gamlan draum rætast að vinna við skapandi greinar og starfar nú sem sjálfstætt starfandi myndhöfundur.
Boðið verður upp á smiðju í tengslum við sýninguna.
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, verkefnastjóri
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411 6145