Um þennan viðburð

Tími
17:30 - 18:30
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Tungumál
Íslenska
Bókmenntir
Fræðsla

Leshringur | Glataðir snillingar

Fimmtudagur 20. nóvember 2025

Í nóvember ræðum við Glataða snillinga eftir helsta skáld Færeyja, William Heinesen. Hún fjallar um þrjá músíkalska syni kirkjuvarðar og átök þeirra við trúarofstækismenn við upphaf 20. aldar í Færeyjum. Hún var þýdd af Þorgeiri Þorgeirssyni árið 1984 en hafði áður komið út undir heitinu Slagur vindhörpunnar í þýðingu Guðfinnu Þorsteinsdóttur, einnig þekktri sem Erlu skáldkonu.

Umfjöllun um Heinesen má finna hér í Morgunblaðinu á tímarit.is sem og viðtal við þýðandann.

Leshringurinn Sólkringlan hittist venjulega þriðja fimmtudag í mánuði kl. 17.30-18.30 í Borgarbókasafninu Kringlunni, frá september til maí.

Dagskráin fyrir haustið 2025 er eftirfarandi:

  • 18. september: Merking eftir Fríðu Ísberg
  • 16. október: Ævisaga þorsksins eftir Mark Kurlansky
  • 20. nóvember: Glataðir snillingar eftir William Heinesen
  • 18. desember: Paradís eftir Abdulrazak Gurnah

Umsjón og skráning:
Guttormur Þorsteinsson, sérfræðingur
guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is | 411 6204