Pikknikk á Klambratúni

Um þennan viðburð

Tími
14:00 - 16:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
Enska, þýska, spænska, pólska, íslenska, arabíska
Spjall og umræður

Pikknikk á Klambratúni

Miðvikudagur 3. júlí 2024

Borgarbókasafnið býður í lautarferð á Klambratúni. Gestgjafar deila nesti sínu með öðrum og hvetja okkur til að deila meiru og tengjast fleirum á jafningagrundvelli. 

Við hvetjum öll að koma með eigið nesti og setjast með okkur á Klambratúni og spjöllum.
Gott er að kippa með sér teppi eða einhverju mjúku til að tylla sér á.  

Þið finnið okkur undir rauðu og grænu sólhlífunum

Lautarferðirnar eru tækifæri til að tengjast öðru fólki með nýjum hætti. Með því að deila því sem er nærandi viljum við ýta undir traust meðal fólks til að ræða málefni með nýjum hætti. Þessi lautarferð er skipulögð í samstarfi við Vesturmiðstöð Reykjavíkurborgar

Öll velkomin og þátttaka ókeypis.

Viðburður á Facebook

Nánari upplýsingar um Lautarferðir bókasafnsins:
Dögg Sigmarsdóttir   
Verkefnastjóri | Borgaraleg þátttaka    
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is