people having a picnic in Kléberg

Pikknikk í Klébergi

Íbúar Kjalarness kíktu í Pikknikk á bókasafninu í Klébergi og gæddu sér á Pierogi: “pólskum dumplings”. Gagnrýnar og skemmtilegar umræður sköpuðust um samband Kjalarness við Reykjavíkuborg - hvenær finnst þeim þau tilheyra borginni og hvenær er tekið tillit til hagsmuna þeirra í pólitík? Flest sækja grunnþjónustu í Mosfellsbæ, svo sem að fara á heilsugæslu, í verslun og annað sem er tilheyrir daglegu lífi.

polish dumplings someone talking in the library

Ekki er um marga samkomustaði á svæðinu og væri það kærkomið ef bókasafnið myndi styðja við hátíðir eða aðra viðburði sem fá íbúa til að koma saman. Skólabygging á svæðinu verður til dæmis 100 ára á næsta ári og væri til ágætis tilefni til að taka höndum saman.  

Við þökkum kærlega fyrir samverustundina! 

 

Meira um lautarferðirnar hér

Frekari upplýsingar veitir: 
Dögg Sigmarsdóttir 
Verkefnastjóri | Borgaraleg þátttaka 
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is

UppfærtÞriðjudagur, 11. júní, 2024 11:35