Um þennan viðburð

Tími
15:00 - 16:30
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Aldur
16+
Tungumál
English
Skapandi tækni

Vekjum vorið | Textíl prentun með Christalena Hughmanick

Laugardagur 18. apríl 2026

Vertu með í fróðlegri og skemmtilegri smiðju þar sem við kynnumst vistvænni aðferð til að prenta með plöntum á textíl. Við munum nota laukhýði frá veitingastöðum í nærumhverfinu, til að skapa einstök mynstur á sjálfbæran hátt. Allt efni og tól verða til staðar og engin fyrri reynsla er nauðsynleg. Hver þátttakandi fer heim með sitt eigið textílprentverk.

Námskeiðið er leitt af Christalena Hughmanick. Christalena er myndlistarkona, gjörningalistakona og kennari búsett í Reykjavík, Íslandi. Í þessum starfsháttum byggir hún upp samfélag í gegnum kennslu og sameiginlega reynslu, á meðan hún leikur sér með hlutverk listamanns og áhorfanda, neytanda og framleiðanda. Þessar aðferðir í félagslegri listsköpun þróaði hún samhliða MFA-námi við School of the Art Institute of Chicago (2010–2012).

 

Þátttaka er ókeypis en pláss er takmarkað og er skráning því nauðsynleg hér fyrir neðan.

Viðburðurinn er hluti af vorhátíð Fríbúðarinnar í Gerðubergi: Vekjum vorið. Með hátíðinni erum við að fagna hringrásinni og í boði eru viðburðir sem tengjast hinum ýmsu vorverkum. Í Fríbúðinni í Gerðubergi eru allir hlutir ókeypis, þangað er hægt að koma með hluti í góðu ástandi sem nýtast ekki lengur og taka heim með sér það sem vantar.

 

Borgarbókasafnið Gerðubergi er þátttakandi í alþjóðlegu verkefni til þriggja ára sem nefnist make-a-thek. Markmiðið með þessu verkefni er að skapa vettvang fyrir skapandi og framsækna neytendur (prosumer) þar sem þekkingu er deilt og við lærum í sameiningu nýjar aðferðir t.d. við að gera við textíl, og kynnumst allskyns handverki og aðferðum. Þetta er ferðalag og áfangastaðurinn mótast með þátttöku sem flestra. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu.

 

Nánari upplýsingar veitir:
Atli Pálsson, sérfræðingur
atli.palsson@reykjavik.is | 411-6170