Origami-pappírsgjafaöskur í ýmsum litum og mynstrum á borði

Um þennan viðburð

Tími
15:30 - 17:30
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Aldur
8 ára og eldri, yngri í fylgd fullorðinna
Tungumál
Íslenska og enska
Fræðsla
Föndur

Tilbúningur | Origami-gjafaöskjur

Fimmtudagur 8. maí 2025

Langar þig að eiga notalega stund þar sem sköpunarkrafturinn fær að njóta sín í góðum félagsskap?

Þennan annan* fimmtudag í maí ætlum við að búa til pappírsgjafaöskjur með japanskri pappírsbrotsaðferð sem kallast origami. Boðið verður upp á origami pappír en einnig verður hægt að skera til venjulegan pappír sem hægt að skreyta með eigin teikningum. Auk þess verður hægt að nota síður úr gömlum bókum.

*Tilbúningur er viðburðaröð sem fer almennt fram fyrsta fimmtudag hvers mánaðar í Borgarbókasafninu Úlfarsárdal frá kl. 15:30-17:30.

Eigum saman notalega stund, búum eitthvað til úr einhverju og endurnýtum alls konar. Leiðbeinendur koma með hugmyndir, efni og áhöld og aðstoða við tilbúninginn..

Viðburðirnir henta skapandi fólk á öllum aldri. Börn yngri en 8 ára komi í fylgd með forráðamanni.

Kostar ekkert og engin skráning.

 

Viðburður á Facebook.

 

Nánari upplýsingar veitir:
Stella Sif Jónsdóttir | Viðburðir
stella.sif.jonsdottir@reykjavik.is