
Um þennan viðburð
Tilbúningur | Perluarmbönd
Búum til armbönd úr perlum!
Mættu á Tilbúning í Spönginni og föndraðu perluarmbönd með okkur. Stafaperlur, litríkar kúluperlur og fallegar skrautperlur verða í boði.
Viðburðurinn er viðeigandi fyrir fólk á öllum aldri, og við hvetjum fullorðið fólk sérstaklega til að leyfa sér að taka þátt og vera skapandi, óháð „listrænum hæfileikum“. Yngri börn ættu að vera í fylgd fullorðinna sem geta aðstoðað þau við flóknari fínhreyfingar. Áhöld og efniviður verða á staðnum. Aðgangur er ókeypis og skráning er ekki nauðsynleg.
Viðburðurinn fer fram á jarðhæð, og það er aðgengilegt salerni nokkra metra frá. Efri hæð safnsins er aðgengileg með lyftu.
Tilbúningur fer fram á Borgarbókasafninu í Spönginni á fyrsta miðvikudegi hvers mánaðar, og á Borgarbókasafninu í Árbæ annan fimmtudag hvers mánaðar.
Viðburðurinn á facebook.
Nánari upplýsingar veitir:
Védís Huldudóttir | Sérfræðingur
vedis.huldudottir@reykjavik.is | 411-6244 ✆