Tengivirkið - Young people Connect

Um þennan viðburð

Tími
16:00 - 17:30
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Fræðsla
Spjall og umræður
Tungumál

Tengivirkið - Young People Connect

Fimmtudagur 19. maí 2022

Í Tengivirkinu lærum íslensku með fjölbreyttum hætti, meðal annars í gegnum kvikmyndir, spjall, verkefni og leiki, með Hildi Loftsdóttur, reyndum íslenskukennara, blaðamanni og rithöfundi. 

Hildur hefur búið í fjórum löndum og hefur gaman af tungumálum. Undanfarin 11 ár hefur hún starfað sem íslenskukennari, fyrst í New York og núna hjá Tin Can Factory í Reykjavík. Hildur hefur skrifað nokkrar frábærar barnabækur og hlaut árið 2021 hljóðbókarverðlaunin fyrir bók sína Eyðieyjan í flokki barna -og ungmennabókmennta. 

Hildur Loftsdóttir, kennari, blaðamaður og rithöfundur
Í Tengivirkinu - Young People Connect hittist ungt fólk á aldrinum 16 – 25 ára sem hefur annað móðurmál en íslensku. Á dagskrá er fræðsla frá áhugaverðum aðilum og fjölbreytt íslenskukennsla með reyslumiklum kennara - auk þess sem Tengivirkið er góður og afslappandi vettvangur til að kynnast öðrum ungmennum með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu. 

Þátttaka er ókeypis og öllum opin, líka byrjendum í íslensku. Engin skráning og engin skuldbinding, það má mæta eins oft eða sjaldan og hver vill.

Allir viðburðir Tengivirkisins hefjast kl.16:00 og standa til um það bil 17:30. 
Áhugasöm eru hvött til að skrá sig í facebookhóp Tengivirkisins þar sem settar eru inn nánari upplýsingar. 
 

Dagskrá Tengivirkisins - Young People Connect vorið 2022: 

10.febrúar | Kynning á Borgarbókasafninu og frá Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis 
24.febrúar | Fjölbreytt íslenskukennsla 
10.mars | Kynning frá New in Iceland og Andrými - róttæku samfélagsrými í Reykjavík 
24.mars | Fjölbreytt íslenskukennsla 
7.apríl | Heimsókn á Kjarvalsstaði 
28.apríl | Fjölbreytt íslenskukennsla 
12.maí | Kynning frá Student Refugees Iceland og Landssamtökum íslenskra stúdenta (LÍS)
19.maí | Fjölbreytt íslenskukennsla 

Tengivirkið er hluti af þróun bókasafnsins sem opið rými þar sem leitast er eftir því að notendur komi að dagskrárgerð og geri rýmið að sínu eigin. 
 

Nánari uppýsingar veitir: 
Hildur Björgvinsdóttir | verkefnastjóri viðburða og fræðslu 
hildur.bjorgvinsdottir@reykjavik.is