Tengivirkið - Young people Connect

Um þennan viðburð

Tími
16:00 - 17:30
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Fræðsla
Spjall og umræður
Tungumál

Tengivirkið - Young People Connect

Fimmtudagur 10. mars 2022

Í Tengivirkinu í dag fáum við kynningu frá Andrými - Róttæku félagsrými í Reykjavík og frá New in Iceland.

Andrými er róttækt félagsrými sem hefur fyrst og fremst það hlutverk að útvega aðstöðu fyrir grasrótarhópa og einstaklinga til að hittast og skipuleggja baráttu sína fyrir auknu jafnrétti og frelsi. Í Andrými er að finna aðstöðu á við eldhús, þvottavél, prentun, internet, bókasafn, fríbúð, hjóla- og tréverkstæði og fundaraðstöðu, allt frjálst til afnota endurgjaldslaust“. Andrými er staðsett á Bergþórugötu 20 í miðbæ Reykjavíkur. 

New in Iceland veitir öruggar og vandaðar upplýsingar um það hvernig er að búa á Íslandi og aðstoðar þau sem eru nýflutt til landsins eða ennþá að aðlagast. Til að getað þjónustað sem best þau sem leita til New in Iceland eru þau í samstarfi við allar helstu stofnanir og félagasamtök á Íslandi. Hægt er að fá aðstoð á ensku, pólsku, spænsku, portúgölsku, arabísku, litáísku, rússnesku og íslensku.  New in Iceland er á Laugarvegi 116. 


Í Tengivirkinu - Young People Connect hittist ungt fólk á aldrinum 16 – 25 ára sem hefur annað móðurmál en íslensku. Á dagskrá er fræðsla frá áhugaverðum aðilum og fjölbreytt íslenskukennsla með reyslumiklum kennara - auk þess sem Tengivirkið er góður og afslappandi vettvangur til að kynnast öðrum ungmennum með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu. 

Þátttaka er ókeypis og öllum opin. Engin skráning og engin skuldbinding, það má mæta eins oft eða sjaldan og hver vill.

Allir viðburðir Tengivirkisins hefjast kl.16:00 og standa til um það bil 17:30. 
Áhugasöm eru hvött til að skrá sig í facebookhóp Tengivirkisins þar sem settar eru inn nánari upplýsingar. 
 

Dagskrá Tengivirkisins - Young People Connect vorið 2022: 

10.febrúar | Kynning á Borgarbókasafninu og frá Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis 
24.febrúar | Fjölbreytt íslenskukennsla 
10.mars | Kynning frá New in Iceland og Andrými - róttæku samfélagsrými í Reykjavík
24.mars | Fjölbreytt íslenskukennsla 
7.apríl | Heimsókn á Kjarvalsstaði 
28.apríl | Fjölbreytt íslenskukennsla 
12.maí | Kynning frá Student Refugees Iceland og Landssamtökum íslenskra stúdenta (LÍS)
19.maí | Fjölbreytt íslenskukennsla 

Tengivirkið er hluti af þróun bókasafnsins sem opið rými þar sem leitast er eftir því að notendur komi að dagskrárgerð og geri rýmið að sínu eigin. 

Nánari uppýsingar veitir: 
Hildur Björgvinsdóttir | verkefnastjóri viðburða og fræðslu 
hildur.bjorgvinsdottir@reykjavik.is