Daði Guðjónsson bingospjöld

Um þennan viðburð

Tími
16:00 - 17:30
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Fræðsla
Spjall og umræður
Tungumál

Tengivirkið - Young People Connect

Fimmtudagur 28. apríl 2022

BINGO!
Í Tengivirkinu í dag ætlum við að spila Bingó og læra í leiðinni ný orð á íslensku.
Bingóstjóri verður Daði Guðjónsson en hann hefur kennt íslensku sem annað mál í mörg ár og þróað BROS-bingóið, skemmtilega og einfalda leið til að læra íslensku.  
Vinningar fyrir þau heppnu!
Hægt er spila bingóið á venjulegum spjöldum og þau sem treysta sér til geta spilað í tölvu eða síma.

Eftir spilið mun gestum standa til boða að leika sér og læra íslensku með aðstoð námstækja og forrita sem verða á staðnum.
Ókeypis aðgangur og öll velkomin, líka byrjendur í íslensku. 

Verkefnið er styrkt af Velferðarsjóði barna og Origo.

Daði Guðjónsson


Í Tengivirkinu - Young People Connect hittist ungt fólk á aldrinum 16 – 25 ára sem hefur annað móðurmál en íslensku. Á dagskrá er fræðsla frá áhugaverðum aðilum og fjölbreytt íslenskukennsla með reyslumiklum kennara - auk þess sem Tengivirkið er góður og afslappandi vettvangur til að kynnast öðrum ungmennum með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu. 

Engin skráning og engin skuldbinding, það má mæta eins oft eða sjaldan og hver vill.

Allir viðburðir Tengivirkisins hefjast kl.16:00 og standa til um það bil 17:30. 
Áhugasöm eru hvött til að skrá sig í facebookhóp Tengivirkisins þar sem settar eru inn nánari upplýsingar. 
 

Dagskrá Tengivirkisins - Young People Connect vorið 2022: 

10.febrúar | Kynning á Borgarbókasafninu og frá Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis 
24.febrúar | Fjölbreytt íslenskukennsla 
10.mars | Kynning frá New in Iceland og Andrými - róttæku samfélagsrými í Reykjavík
24.mars | Fjölbreytt íslenskukennsla 
7.apríl | Heimsókn á Kjarvalsstaði 
28.apríl | Fjölbreytt íslenskukennsla 
12.maí | Kynning frá Student Refugees Iceland og Landssamtökum íslenskra stúdenta (LÍS)
19.maí | Fjölbreytt íslenskukennsla 

Nánari uppýsingar veita: 
Daði Guðjónsson | kennari
dadikennari@gmail.com

Hildur Björgvinsdóttir | verkefnastjóri viðburða og fræðslu 
hildur.bjorgvinsdottir@reykjavik.is