Tengivirkið - Young people Connect

Um þennan viðburð

Tími
16:00 - 17:30
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Liðnir viðburðir

Tengivirkið - Young People Connect

Fimmtudagur 10. febrúar 2022

Í Tengivirkinu í dag fáum við tvær áhugaverðar kynningar, frá Borgarbókasafninu og Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis.

Borgarbókasafnið er með sjö söfn víðsvegar um borgina. Við fáum að heyra um safnkostinn (bækur, spil, geisladiska og vínilplötur) og þá fjölbreyttu þjónustu og viðburði sem boðið er upp á. Má þar nefna saumavélar, tölvur og prentara, hlaðvarpsstúdíó, tónleika, myndlistarsýningar og íslenskukennslu. 

Helga Margrét Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis kynnir okkur fyrir starfsemi þjónustumiðstöðvanna sem má finna í fimm hverfum Reykjavíkurborgar. Við fáum að heyra um fjölbreytta þjónustu borgarinnar, tækifærin og aðstoð sem býðst.

Í Tengivirkinu - Young People Connect hittist ungt fólk á aldrinum 16 – 25 ára sem hefur annað móðurmál en íslensku. Á dagskrá er fræðsla frá áhugaverðum aðilum og fjölbreytt íslenskukennsla með reynslumiklum kennara - auk þess sem Tengivirkið er góður og afslappandi vettvangur til að kynnast öðrum ungmennum með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu. 

Þátttaka er ókeypis og öllum opin. Engin skráning og engin skuldbinding, það má mæta eins oft eða sjaldan og hver vill.

Allir viðburðir Tengivirkisins hefjast kl.16:00 og standa til um það bil 17:30. 
Áhugasöm eru hvött til að skrá sig í facebookhóp Tengivirkisins þar sem settar eru inn nánari upplýsingar. 

Facebookviðburður
 

Dagskrá Tengivirkisins - Young People Connect vorið 2022: 

10.febrúar | Kynning á Borgarbókasafninu og frá Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis 
24.febrúar | Fjölbreytt íslenskukennsla 
10.mars | Kynning frá New in Iceland og Andrými - róttæku samfélagsrými í Reykjavík
24.mars | Fjölbreytt íslenskukennsla 
7.apríl | Heimsókn á Kjarvalsstaði 
28.apríl | Fjölbreytt íslenskukennsla 
12.maí | Kynning frá Student Refugees Iceland og Landssamtökum íslenskra stúdenta (LÍS)
19.maí | Fjölbreytt íslenskukennsla 

Tengivirkið er hluti af þróun bókasafnsins sem opið rými þar sem leitast er eftir því að notendur komi að dagskrárgerð og geri rýmið að sínu eigin. 

Nánari upplýsingar veitir: 
Hildur Björgvinsdóttir | verkefnastjóri viðburða og fræðslu 
hildur.bjorgvinsdottir@reykjavik.is