Origami smiðja

Um þennan viðburð

Tími
15:30 - 17:30
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Tungumál
Íslenska og enska
Börn
Föndur

Opin smiðja | Listin að brjóta origami

Fimmtudagur 12. september 2024

Verið velkomin í opna smiðju þar sem við æfum okkur að búa til japanskt origami.

Origami aðferðin gengur út á  að móta skúlptúr úr flötum pappír með því að brjóta hann saman eftir kúnstarinnar reglum. Í origami er pappír hvorki klipptur né límdur.

Við munum endurnýta ýmsar gerðir af pappír og allt efni verður á staðnum, en þó velkomið að koma með pappír af heiman.

Öll velkomin, ekki þarf að skrá sig og fólk getur komið og farið hvenær sem er á meðan smiðjan er opin.
 

Viðburður á Facbook

Nánari upplýsingar:
kleberg@borgarbokasafn.is | 411 6275

Merki