An image showing a circular wall calendar made up of three paper discs, that can be rotated to show the month, date and weekday through holes in a triangular viewer.

Um þennan viðburð

Tími
15:30 - 17:30
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Föndur

Tilbúningur | Dagatöl

Miðvikudagur 10. janúar 2024

Það er að koma nýtt ár, og því tilvalið að föndra saman dagatöl. Þetta dagatal getur þú hins vegar notað ár eftir ár eftir ár!

Þessi skemmtilegu pappírsdagatöl eru falleg og sniðug leið til að fylgjast með dögunum sem líða — og einfaldari en þau líta út fyrir að vera! Þau eru samsett úr þremur pappírsskífum og skoðara, og svo er skífunum einfaldlega snúið þegar nýr dagur eða mánuður rennur upp. Sniðmátið sem þú færð í hendurnar er tómt, og þú getur skreytt það hvernig sem þér dettur í hug. (Sýnidæmið á myndinni er til dæmis með afmælistertu í nóvember.)
Viðburðurinn er viðeigandi fyrir fólk á öllum aldri, og við hvetjum fullorðið fólk sérstaklega til að leyfa sér að taka þátt og vera skapandi, óháð „listrænum hæfileikum“.

Áhöld og efniviður verða á staðnum, en þér er velkomið að taka pennaveskið með!

Tilbúningur fer fram á Borgarbókasafninu í Spönginni og er venjulega á fyrsta miðvikudegi hvers mánaðar, en við gerum undantekningu vegna nýársins og höldum þennan viðburð því annan mánudaginn í janúar. Það er einnig Tilbúningur í Borgarbókasafninu í Árbæ, sem er haldinn annan fimmtudag hvers mánaðar. Sjá almennar upplýsingar um viðburðaröðina Tilbúning.
Aðgangur er ókeypis og skráning er ekki nauðsynleg.

Viðburðurinn á facebook.

Nánari upplýsingar veitir:
Védís Huldudóttir | sérfræðingur
vedis.huldudottir@reykjavik.is | ✆ 411-6237