Vísindakakó í Kringlunni

Um þennan viðburð

Tími
13:00 - 14:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Tungumál
Íslenska
Börn
Fræðsla
Spjall og umræður

Vísindakakó fyrir forvitna krakka

Laugardagur 25. janúar 2025

Vísindakakó er viðburður fyrir forvitna krakka sem vilja eiga beint samtal við vísindafólk, heyra hvað það er að rannsaka og hvernig það er að starfa í vísindum.

Á vísindakakó gefst gestum tækifæri á að hitta aðila úr vísindasamfélaginu í óformlegu spjalli um þær vísindarannsóknir sem viðkomandi leggur stund á og ekki síst fá að spyrja ótal spurninga um allt það sem við kemur því að starfa við rannsóknir og vísindi.

Á þessu Vísindakakói mun Dr. Arnar Eggert Thoroddsen aðjunkt við Félagsfræði-, mannfræði og þjóðfræðideild Háskóla Íslands, segja gestum frá sínum vísindastörfum.

Gert er ráð fyrir að viðburðurinn sé um ein klukkustund og að sjálfsögðu verður boðið upp á kakó og kleinur á meðan birgðir endast.

Vakin er athygli á því að Vísindakakó verður haldin alls tíu sinnum í vetur á mismunandi bókasöfnum á höfuðborgarsvæðinu.

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin

Heildardagskrá fyrir Vísindakakó má sjá á heimasíðu Vísindavöku.

Viðburður á Facebook

 

Nánari upplýsingar veitir:

Davíð Fjölnir Ármannsson, kynningarfulltrúi RANNÍS
david.f.armannsson@rannis.is | 515 5818